ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Umgjörð um græna fjármögnun

Við höfum birt umgjörð um græna fjármögnun (e. Green Financing Framework) sem gerir okkur kleift að gefa út græn skuldabréf. Í stuttu máli er um að ræða skýra áætlun sem segir hvaða verkefni geta fengið græna fjármögnun, hvernig valið fer fram og hvernig við upplýsum um árangurinn, þannig að fjármögnun og framkvæmdir haldist í takt við sjálfbærnimarkmið.

Hvað þýðir þetta fyrir okkur?

Fyrir okkur er útgáfan ekki bara „stimpill“ heldur verkfæri sem styrkir hvernig fyrirtækið fjárfestir og viðheldur innviðum um land allt. Með umgjörðinni er auðveldara að tengja fjármögnun beint við verkefni sem skila mælanlegum umhverfisávinningi og styðja við orkuskipti, sérstaklega á landsbyggðinni.

 

Umgjörðin þýðir að við getum fjármagnað eða endurfjármagnað verkefni, eignir og fjárfestingar sem falla undir hana. Ferlið um mat og val á verkefnum er skilgreint og upplýsingagjöf hluti af pakkanum. Umgjörðin styður þannig við áherslur um markvissa uppbyggingu og viðhald raforkuinnviða um land allt. Með því að beina grænni fjármögnun að réttum verkefnum skapast betri forsendur fyrir orkuskiptin og blómlegt atvinnulífi á dreifisvæði okkar.

 

Við fylgjum alþjóðlegum viðmiðum

Umgjörðin byggir á alþjóðlegum viðmiðum um græn skuldabréf (e.Green Bond Principles 2025) og grænar lánveitingar (e. Green Loan Principles 2025). Í henni er fjallað um fjögur lykilskilyrði:

  • Ráðstöfun fjármuna
  • Ferli um mat og val á verkefnum
  • Stýring fjármuna
  • Upplýsingagjöf

Allar framkvæmdir sem fjármagnaðar eru með grænni fjármögnun þurfa að uppfylla skilyrði umgjarðarinnar svo tryggt sé að fjármagnið nýtist í verkefni sem samræmast markmiðum um umhverfisávinning og ábyrg vinnubrögð.

 

Hæsta einkunn

Umgjörðin okkar fékk vottun frá Moody’s Ratings, viðurkenndum vottunaraðila á heimsvísu. Niðurstaðan var einkunnin SQS1 (excellent) sem er hæsta einkunn á einkunnarskala Moody’s. Fyrir okkur þýðir það að óháður aðili staðfestir að umgjörðin sé í samræmi við helstu alþjóðlegu viðmið og að nálgunin endurspegli skýrt framlag fyrirtækisins til sjálfbærni.

 

„Við fögnum því mjög að umgjörð okkar um græna fjármögnun hafi hlotið hæstu einkunn frá Moody’s Ratings. Sú niðurstaða er mikilvæg viðurkenning á þeirri vegferð sem við höfum verið á undanfarin ár – í átt að aukinni sjálfbærni, ábyrgum rekstri og markvissri uppbyggingu. Umgjörðin mun jafnframt styðja enn frekar við áherslur okkar um fjárfestingu og viðhald innviða um land allt, með það að markmiði að stuðla að orkuskiptum á landsbyggðinni og skapa forsendur fyrir blómlegt atvinnulíf og þróttmikil samfélög,“ segir Elísabet Ýr Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála hjá Rarik

 

Umgjörðin var unnin í samstarfi við Landsbankann og hana, ásamt áliti Moody’s Ratings, má nálgast hér fyrir neðan.

Græn umgjörð 2026
Rarik - Second Opinion - Moody's Ratings - April 2026

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

Rarik ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

Þjónustuver

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14

Bilanavakt allan sólarhringinn

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik