Aðalfundur okkar árið 2026 fór fram í húsnæði Drift EA á Akureyri mánudaginn 27. apríl. Um hefðbundinn aðalfund var að ræða þar sem farið var yfir rekstur og árangur liðins árs, stöðu og horfur samstæðunnar, auk þess sem tekin voru fyrir hefðbundin aðalfundarstörf og breytingar á stjórn félagsins.
Á fundinum kom skýrt fram að rekstur félagsins stendur á traustum grunni og að við erum vel í stakk búin til að takast á við umfangsmikil verkefni á næstu árum. Þá var jafnframt lögð áhersla á að áframhaldandi uppbygging innviða, aukið afhendingaröryggi og skýr framtíðarsýn skipti lykilmáli fyrir verðmætasköpun, atvinnuuppbyggingu og lífsgæði á landsbyggðinni.
Ingunn Agnes Kro, stjórnarformaður Rarik, setti fundinn og kom í ávarpi sínu inn á það hversu hratt heimurinn er að breytast og hversu hratt umhverfi Rarik er að breytast sömuleiðis. Aukin orkuþörf kallar á klassískar styrkingar á kerfinu en jafnframt á nýjar lausnir og nýja tækni. Flæði raforku verður t.d. ekki eingöngu frá okkur til viðskiptavina heldur einnig frá viðskiptavinum okkar og inn á kerfið. Hún fór í gegnum þau leiðarljós sem starfsfólk Rarik hefur til hliðsjónar við dagleg störf, þ.e. stefnumarkmið fyrirtækisins, þau fjölmörgu verkefni sem unnið var að undir þessum markmiðum og árangur þeirra. Nánar um þau má lesa í nýútkominni ársskýrslu Rarik.

Ingunn Agnes Kro flutti skýrslu stjórnar á aðalfundi Rarik.
„Við höfum mjög mikinn metnað fyrir því að reka Rarik vel. En við megum ekki gleyma því að stærsta virðið felst ekki í beinni afkomu Rarik heldur í þeim margföldunaráhrifum sem að verða í samfélögum með auknum aðgangi að orku; vexti, störfum og stærra skattspori,“ sagði Ingunn Agnes í ávarpi sínu.
Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Rarik, skilaði fjármálaskýrslu stjórnar og fór yfir helstu tölur úr rekstri samstæðunnar. Þar kom fram að árið hafi verið sterkt í rekstri samstæðunnar og að fjárhagsstaða félagsins sé traust. Hann sagði það lykilatriði að rekstur væri arðbær og fyrirsjáanlegur því það væri forsenda þess að við gætum staðið undir þeim fjárfestingum sem fram undan eru.
Hagnaður samstæðunnar nam 3,6 milljörðum króna og rekstrarhagnaður (EBITDA) 10,3 milljörðum króna. Tekjur jukust um 18% milli ára og námu 28,3 milljörðum króna. EBITDA-hlutfall var 36,2% og eiginfjárhlutfall 63,7%. Fjárfesting ársins nam 9,3 milljörðum króna og handbært fé frá rekstri var 8,2 milljarður króna.

Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Rarik, fór yfir helstu tölur úr rekstri samstæðunnar fyrir árið 2025.
Tekjur af dreifingu raforku námu 17,6 milljörðum króna og jukust um 18% frá fyrra ári. Tekjur af orkusölu jukust um 24% og námu um 9,0 milljörðum króna. Þá kom fram að ekki hafi verið skortur á ótryggri orku og jukust tekjur af dreifingu hennar um 120%. Á sama tíma lækkuðu tekjur af hitaveitu um 20%, sem skýrist að mestu af því að rekstur fjarvarmaveitunnar á Seyðisfirði var afhentur Múlaþingi í ársbyrjun 2025.
Í yfirferð forstjóra kom jafnframt fram að rekstrarkostnaður samstæðunnar án afskrifta nam rúmlega 18 milljörðum króna og hækkaði um 10% milli ára. Þar vógu þyngst hækkanir á kostnaði vegna orkuflutnings, sem hækkaði um 15%, og kostnaði vegna orkutapa, sem hækkaði um 70%. Sérstaklega var bent á að orkutengd kaup nema um 35% af tekjum samstæðunnar og að breytingar á þeim liðum hafi því veruleg áhrif bæði á rekstur félagsins og viðskiptavini þess. Á móti náðist góður árangur í öðrum rekstrarkostnaði, sem lækkaði um 7% milli ára, sem endurspeglar aukna kostnaðarvitund og markvissara aðhald í rekstrinum.
„Við búumst við fjárfestingum fyrir allt að 10 milljarða króna að núvirði næstu 5 árin. Það verður áfram meginverkefni okkar að tryggja sterka afkomu, gott aðhald í rekstri og trausta og fjölbreytta fjármögnun,“ sagði Magnús Þór. Hann nefndi sérstaklega útgáfu grænna skuldabréfa sem Rarik mun í fyrsta sinn bjóða upp á en félagið birti nýverið umgjörð um græna fjármögnun sem fékk hæstu einkunn Moody‘s.
Á fundinum var kynnt ný arðsemisstefna samstæðunnar og viðmið um arðgreiðslur sem sett voru á síðasta ári. Um er að ræða nýja aðferðafræði hjá félaginu sem ætlað er að tryggja viðunandi arðsemi í samræmi við hlutverk þess og langtímamarkmið. Á grundvelli þeirrar stefnu var lögð fyrir tillaga um arðgreiðslu á árinu 2026 vegna rekstrarársins 2025 að fjárhæð rúmlega eins milljarðs króna.
Með þessari nálgun er leitast við að tryggja jafnvægi milli þess að eigandi njóti ávinnings þegar vel gengur og þess að samstæðan hafi jafnframt svigrúm til að halda eftir fjármunum þegar þörf er á vegna uppbyggingar og fjárfestinga.

Fram kom að rekstrarhorfur fyrir árið 2026 eru góðar og að samstæðan standi á föstum grunni. Á næstu fimm árum stefnum við að verulegri uppbyggingu innviða með um 10 milljarða króna fjárfestingum árlega til að styrkja dreifikerfið, mæta orkuskiptum og bæta afhendingaröryggi.
Það sem stóð upp úr á fundinum var skýr mynd af félagi sem stendur sterkt rekstrarlega, hefur markað sér skýra stefnu og hyggst halda áfram að fjárfesta af krafti í innviðum og framtíðarsókn.
Á aðalfundinum voru gerðar tvær breytingar á stjórn félagsins. Ari Kristinn Jónsson, sem gegndi stöðu aðstoðarstjórnarformanns, lætur af störfum sem varaformaður stjórnar eftir að hafa tekið við starfi framkvæmdastjóra fjárfestingasjóðs NATO. Þóra Þórisdóttir tekur jafnframt við stöðu varamanns í stjórn. Nýir stjórnarmeðlimir eru Björn Gíslason, verkefnastjóri atvinnuuppbyggingar á Bakka, og Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Drift EA. Áfram sitja í stjórn félagsins Ingunn Agnes Kro, formaður stjórnar, Sigrún Hallgrímsdóttir og Sverrir Jan Norðfjörð.
Við þökkum fráfarandi stjórnarmönnum kærlega fyrir þeirra ómetanlega framlag til fyrirtækisins og bjóðum nýja stjórnarmenn hjartanlega velkomna.

Frá aðalfundi Rarik 2026.
Aðalfundurinn fór fram í húsnæði Drift EA á Akureyri og fundarstjóri var Berglind Ósk Guðmundsdóttir, lögfræðingur. Með því að halda fundinn hjá Drift var jafnframt dregið fram mikilvægi Norðurlands og landsbyggðarinnar í starfsemi okkar, í samræmi við hlutverk félagsins og áherslur um öfluga nærveru og uppbyggingu víða um land. „Það er sérstakt ánægjuefni að fundurinn sé haldinn hér hjá Drift sem er hreyfiafl frumkvæðis og nýsköpunar. Frumkvæði og nýsköpun eru einmitt grunnurinn að framþróun og betri lífskjörum,“ sagði Ingunn Agnes Kro við setningu aðalfundar.
Hægt er að horfa á upptöku af aðalfundi Rarik hér.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14