ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Breytingar á gjaldskrám 1. maí 2026

Frá og með 1. maí 2026 hækka valdir gjaldaliðir í gjaldskrám okkar um 3%. Hækkunin er undir verðlagsþróun frá nóvember 2025 og er meðal annars til komin vegna almennra verðlagshækkana í þjóðfélaginu. Einnig liggur fyrir að ráðast þarf í viðamiklar fjárfestingar í dreifikerfinu til að styðja við orkuskipti, öflugt atvinnulíf og samfélög í sókn á landsbyggðinni.  

Breytingar á gjaldskrá fyrir flutning og dreifingu rafmagns

Í gjaldskrá okkar fyrir flutning og dreifingu rafmagns verður 3% hækkun á gjaldaliðum hjá viðskiptavinum á orkutöxtum. Þess bera að geta að hækkunin á eingöngu við um gjaldaliði Rarik en ekki flutningsgjöld Landsnets.  

 

Reiknuð áhrif hækkunarinnar á meðalheimili í þéttbýli miðað við 4.500 kWst í notkun á ári eru um 2,1% eða 170 kr. á mánuði með virðisaukaskatti. Í dreifbýli eru áhrifin um 3,2% eða 358 kr. á mánuði.  

 

Afltaxtar haldast óbreyttir og hækka ekki, en á afltöxtum eru stærstu viðskiptavinir okkar sem m.a. halda úti orkufrekri atvinnustarfsemi á landsbyggðinni.  

Gjaldskrá fyrir flutning og dreifingu raforku

Gjaldskrá fyrir tengigjöld rafmagns

Allir gjaldaliðir vegna tengigjalda rafmagns hækka um 3%, sem er undir verðbólguþróun líkt og kemur fram hér að ofan. Að auki voru gerðar nokkrar breytingar á texta í gjaldskránni sjálfri til að auka skýrleika hennar.  

 

Sem dæmi um breytingar er að nú hefur verið sett inn ákvæði um að einungis verði afgreiddar heimtaugar sem áætlað er að spennusetja innan 12 mánaða frá því að lagningu á heimtaugastreng og kerfisuppbyggingu lýkur. Eftir þann tíma gildir gjaldskrá um endurtengingu. Að auki höfum við sett inn takmörkun á stærð heimtauga til heimila og orlofshúsa á hitaveitusvæði okkar og er hún 50 A.

 

Þá var bætt inn ákvæði um að ekki er hægt að skipta í gjaldflokk fyrir minni heimtaug tímabundið, nema afsala sér heimtaugarétti. Þetta þýðir að óski viðskiptavinur eftir að stækka heimtaugina aftur síðar, þá þarf að greiða fyrir stækkunina skv. tengigjaldskrá.

Gjaldskrá fyrir tengigjöld rafmagns

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

Rarik ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

Þjónustuver

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14

Bilanavakt allan sólarhringinn

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik