ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Athugun á bótaskyldu vegna rafmagnstruflana

Ef þú telur þig hafa orðið fyrir tjóni í kjölfar rafmagnstruflunar frá dreifikerfi Rarik getur þú fyllt út formið hér fyrir neðan.  

Þegar tilkynning berst könnum við hvort rafmagnstruflun hafi orðið á þeim stað og á þeim tíma sem þú tilgreinir og upplýsum hvort bótaskylda geti verið fyrir hendi samkvæmt gildandi lögum og reglum.

 

Með því að senda inn tjónstilkynningu óskar þú eftir því að Rarik meti hvort skilyrði bótaskyldu séu uppfyllt samkvæmt reglum skaðabótaréttar. Tjónstilkynning til Rarik felur ekki í sér beiðni um vettvangsskoðun eða hefðbundið tjónsmat líkt og hjá tryggingafélögum. 


Matið byggir á yfirferð atvika og þeirra gagna sem lögð eru fram. Niðurstaða byggir á mati á orsakatengslum, saknæmi og öðrum skilyrðum bótaskyldu samkvæmt lögum. 

 

Vátryggingar

Viðskiptavinum er bent á að kanna hvort tjón geti fallið undir eigin vátryggingar, svo sem heimilis-, innbús- eða rekstrartryggingar.

 

Í stuttu máli

  • Þú ert að kanna mögulega bótaskyldu Rarik en ekki að óska eftir tjónsmati.
  • Rarik metur hvort skilyrði bótaskyldu séu uppfyllt.
  • Ábyrgð dreifiveitna er takmörkuð samkvæmt lögum.
  • Gott er að kanna eigin tryggingar samhliða.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

Rarik ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

Þjónustuver

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14

Bilanavakt allan sólarhringinn

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik