Við leggjum metnað okkar í að hafa umhverfisvernd ávallt til hliðsjónar við stefnumótun og framtíðarþróun fyrirtækisins, rekstur þess og framkvæmdir. Í umhverfis- og loftlagsstefnum okkar kemur meðal annars fram að markmið Rarik er að nýta orkuauðlindir landsins í þágu þjóðar og í sátt við umhverfið. Í starfseminni ber að taka tillit til hagkvæmrar notkunar aðfanga, endurnýtingar efnis og tækjabúnaðar og til ábyrgrar förgunar á úrgangi. Þá skulu hönnun og framkvæmdir miða að því að valda sem minnstri röskun á umhverfinu og lífríki þess.
Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14