Ef þú ert að flytja eða framkvæma innan dreifisvæðis okkar þá ertu á réttum stað. Hér fyrir neðan getur þú tilkynnt flutning eða sótt um heimlagnir. Við minnum á mikilvægi þess að senda inn umsóknir tímanlega til að fá heimtengingar rafmagns og vatns og mælum með að slíkar umsóknir séu sendar inn snemma á vorin.
Að gefnu tilefni viljum við minna á að frá og með 15. október og til 1. apríl bætist vetrarálag ofan á allan kostnað vegna jarðvegsframkvæmda. Jarðvegsvinna að vetri til er bæði erfiðari og kostnaðarsamari en á sumrin vegna ýmissa þátta, t.d. frosts í jörðu, snjóalaga, veðurs sem tafið getur framkvæmdir og stutts birtutíma. Því bætist viðbótargjald ofan á fastan kostnað vegna heimlagna yfir vetrartímann. Frá og með 15. október og til 1. apríl bætast 7.500 krónur m.vsk. ofan á hvern lengdarmetra sem Rarik þarf að leggja í jörð utan lóðamarka viðskiptavinar umfram 25 m, grunngjald er alltaf 187.500 kr. m.vsk. Um jöfnunargjald er að ræða fyrir allt landið til að jafna út þann kostnaðarauka sem fellur til vegna ofangreindra ástæðna. Aukakostnaður getur orðið verulegur og er í mörgum tilfellum mun hærri en sem nemur þessu álagi. Við hvetjum viðskiptavini, sem eiga þess kost, til að seinka vinnu við heimtaugar fram yfir 1. apríl til að spara mögulega óþörf útgjöld og sækja tímanlega um heimlagnir fyrir sumartímann.
Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14