ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

RARIK ræðst í skipulagsbreytingar í kjölfar stefnumótunarvinnu

Í umfangsmikilli stefnumótunarvinnu RARIK sem unnin var á vetrarmánuðum 2022 – 2023 var grundvöllur lagður að nauðsynlegum skipulagsbreytingum. Markmið skipulagsbreytinganna er að semja fyrirtækið að breyttu starfsumhverfi og væntingum allra hagaðila; viðskiptavina, starfsfólks, eigenda og samfélagsins sem fyrirtækið þjónar. Aukin áhersla er á skilvirka þjónustu, hlutverk fyrirtækisins gagnvart þriðju orkuskiptunum og stafrænar breytingar. Inn á við endurspeglar nýtt skipulag áherslu á þróun mannauðs, árangur og eftirsóknarverða vinnustaðarmenningu auk þess sem áherslan verður í ríkari mæli á verkefnamiðað skipulag. Hlutverk RARIK var endurskilgreint sem og framtíðarsýn, ný meginmarkmið voru sett og grunngildi skilgreind eftir könnun og vinnu með þátttöku alls starfsfólks.

Síðustu skipulagsbreytingar hjá RARIK tóku gildi fyrir 15 árum síðan og var því kominn tími á að huga að því hvort tækifæri gætu falist í nýju heildarskipulagi. Fyrirtækið hefur vissulega ekki staðið í stað á þessum tíma enda skilar árleg stefnumótunarvinna sér í fjölda umbótaverkefna. Þetta hefur reynst vel til að hagræða bjargráðum RARIK þannig að hægt sé að bregðast við áskorunum og nýta tækifæri. 

 

Nýtt skipulag frá 1. október
Eins og áður segir var aukin áhersla lögð á mannauðsmál, stafrænar breytingar, þjónustu og viðskiptavinamiðaða hugsun en verkefnastjórnun og verkefnamiðað skipulag var einnig skilgreint sem tækifæri fyrir RARIK. Í ljósi þess að þriðju orkuskiptin er lykilþáttur í starfsemi RARIK var einnig ljóst að loftslagsmálin væru orðin að aðalatriði. Með starfsemi sinni mun RARIK verða í bílstjórasætinu í orkuskiptum á landsbyggðinni. 

 

Í nýju skipulagi er kjarnastarfsemi fyrirtækisins á þremur sviðum, Veitukerfi, Viðskiptaþjónusta og  Þróun og framtíð. Þvert á kjarnasviðin eru stoðsviðin Mannauður og menning, Viðskiptatækni og skilvirkni og Fjármál sem veita þjónustu til allra sviða og þar með allrar starfsemi fyrirtækisins.

Skipulag RARIK frá 1. október 2023

Í nýju skipulagi eru einnig tvær stoðeiningar sem eru Stjórnarhættir og sjálfbærni og Verkefnastofa. Stjórnarhættir og sjálfbærni heldur utan um gæðamál, áhættustjórnun, sjálfbærni, samskipti, samfélagslega ábyrgð og uppýsingastjórnun. Verkefnastofa heldur utan um verkefnaskrá fyrirtækisins, sinnir faglegri verkefnastjórnun og vinnur að innleiðingu verkefnamiðaðs skipulags. Teymi fyrirtækisins verða síðan ýmist varanleg eða tímabundin þar sem unnið er að lausn sértækra verkefna.

 

Framkvæmdastjórar í nýju skipulagi eru sex:

Egill Jónasson

Egill Jónasson - Viðskiptaþjónusta

Elísabet Ýr Sveinsdóttir – Fjármál

Elísabet Ýr Sveinsdóttir – Fjármál

Guðni Björgvin Guðnason – Viðskiptatækni og skilvirkni

Guðni Björgvin Guðnason – Viðskiptatækni og skilvirkni

Helga Jóhannsdóttir – Veitukerfi

Helga Jóhannsdóttir – Veitukerfi

Sigrún Birna Björnsdóttir – Mannauður og menning

Sigrún Birna Björnsdóttir – Mannauður og menning

Tryggvi Ásgrímsson – Þróun og framtíð

Tryggvi Ásgrímsson – Þróun og framtíð

Silja Rán Steinberg Sigurðardóttir aðstoðarforstjóri

Silja Rán Steinberg Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri

Magnús Þór Ásmundsson forstjóri RARIK

Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri

Auk þess hefur Silja Rán Steinberg Sigurðardóttir verið skipuð aðstoðarforstjóri fyrirtækisins til hliðar við Magnús Þór Ásmundsson forstjóra.

 

Framkvæmdastjórum fjölgar um tvo frá fyrra skipulagi en ekki er um raunfjölgun í stjórnendahópnum að ræða þar sem deildarstjórum fækkar. Framkvæmdastjórnin er skipuð jafnmörgum konum og körlum. Yngsti framkvæmdastjórinn er 34 ára og sá elsti 68 ára og í hópnum er mikil reynsla og hæfni sem skapar nauðsynlega samvirkni fyrir fyrirhugaðar breytingar.

 

RARIK er landsbyggðarfyrirtæki, með dreifða starfsemi um allt land þar sem 70% starfsfólks starfar. Starfsstöð fyrirtækisins í Reykjavík er engu að síður mikilvæg vegna stjórnsýsluverkefna, aðgangs að sérfræðingum og stærsta einstaka viðskiptavinahópi fyrirtækisins sem staðsettur er í Reykjavík. Nú þegar er starfað eftir þeirri stefnu að ýmis sérfræði- og stjórnendastörf eru í starfsstöðvum á landsbyggðinni og atvinnutækifæri hjá RARIK eru auglýst án staðsetningar sé þess kostur.

 

Í tengslum við skipulagsbreytingarnar verða níu ný störf auglýst á næstu dögum og hvetur RARIK áhugasama um að sækja um.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar