Dagana 9.-11. september lögðu stjórn og framkvæmdastjórn Rarik land undir fót og héldu norður. Árleg stjórnarferð okkar er löngu orðin fastur liður í starfinu og í þetta sinn lá leiðin um Norðurland, frá Húnaþingi vestra að Norðurþingi í austri. Langanesbyggð fékk þó frí frá okkur í ár þrátt fyrir að tilheyra Norðurlandi enda vorum við þar í stjórnarferð síðasta haust.
Tilgangurinn með þessum ferðum er í grunninn einfaldur: að hitta fólkið okkar, sveitarfélög og fyrirtæki á þeirra heimavelli, hlusta á það sem helst brennur á þeim og ræða saman um verkefnin fram undan. Við viljum ávallt vera í virku samtali við hagaðila okkar og heimsóknir stjórnar eru mikilvægur hluti af þeirri stefnu okkar.

Fyrsti áfangastaður var hitaveitusvæði okkar á Reykjum við Blönduós. Þar fékk stjórnin innsýn í starfsemi hitaveitunnar okkar og skoðaði nýjustu borholuna áður en sest var niður með fulltrúum Húnaþings vestra, Húnabyggðar og Skagastrandar.
Eftir hádegisverð var starfsstöðin okkar á Blönduósi heimsótt en þar hafa verið gerðar nokkrar endurbætur á undanförnum misserum. Starfsstöðin hlaut m.a. umhverfisverðlaun Húnabyggðar fyrir snyrtilega og vel hirta lóð fyrirtækis nú í sumar. Frá Blönduósi lá leiðin áfram á Sauðárkrók þar sem við hittum starfsfólkið okkar og áttum síðan góðan fund með fulltrúum Skagafjarðar.

Heimsóknir á starfsstöðvarnar eru ekki síður mikilvægur hluti ferðarinnar en fundir með sveitar- og bæjarstjórnum. Þar gefst stjórn og framkvæmdastjórn tækifæri til að hitta starfsfólk, heyra hvað er efst á baugi í daglegum rekstri og fá betri innsýn í verkefnin og áskoranirnar á hverju svæði.

Næsta morgun hófst dagskráin á starfsstöðinni okkar á Siglufirði. Þaðan lá leiðin í ChitoCare hjá Primex þar sem við kynntum okkur starfsemina og þær þarfir sem fylgja uppbyggingu fyrirtækis af þessu tagi.
Á Dalvík er ný aðveitustöð í byggingu og kíkt var á framkvæmdina áður en fundað var með fulltrúum Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar. Deginum lauk svo með heimsókn í glæsilega hátæknifiskvinnslu Samherja á Dalvík.

Heimsóknir til fyrirtækja á svæðinu eru mikilvægur hluti stjórnarferðanna. Raforkukerfið er órjúfanlegur hluti atvinnuuppbyggingar um allt land og þarfir fyrirtækja geta breyst hratt. Með því að eiga samtal við forsvarsmenn fyrirtækja á svæðinu fáum við enn betri innsýn í starfsemi þeirra, framtíðaráform og því hvernig við getum undirbúið þá innviði sem þurfa að vera til staðar svo fyrirtæki geti vaxið og dafnað.

Þriðji og síðasti dagurinn hófst á starfsstöð okkar á Akureyri þar sem starfsfólkið tók á móti hópnum. Þessi misserin er nokkuð þröngt um starfsfólk okkar á Akureyri en þau eru í bráðabirgðahúsnæði á meðan gagngerar endurbætur eru gerðar skrifstofuhúsnæði okkar. Í kjölfarið var fundað með fulltrúum Eyjafjarðarsveitar, Grýtubakkahrepps, Svalbarðsstrandarhrepps, Akureyrarbæjar og Hörgársveitar.

Síðan var haldið austur til Húsavíkur. Á leiðinni var meðal annars rætt um uppbyggingaráform á Bakka og eftir komuna var sest niður með fulltrúum Norðurþings, Tjörneshrepps og Þingeyjarsveitar. Lokapunktur þriggja daga ferðar var svo heimsókn í Hraðið á Húsavík þar sem við kynntum okkur starfsemina en við verðum þátttakendur á HönnunarÞingi sem Hraðið stendur fyrir dagana 25.-26. september n.k þar sem meginþemað er orka. Það var viðeigandi endir á ferð sem snerist einmitt að stórum hluta um samtal, samstarf og framtíðina.
Dreifisvæði okkar er stórt og aðstæður og þarfir geta verið mjög ólíkar eftir því hvar á landinu við erum stödd. Meðal þess sem farið var yfir á fundum okkar í ár var að tækifæri væru svo sannarlega til staðar á Norðurlandi til að nýta orkuna betur. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á kerfinu okkar á svæðinu á undanförnum árum, sem dæmi má nefna enduruppbyggingu og stækkun aðveitustöðvar okkar á Laxárvatni, nýja aðveitustöð sem er í byggingu á Dalvík og fjölmörg strenglagningarverki en strengvæðingu og þrífösun er nánast lokið í flestum sveitarfélögum á Norðurlandi. Einnig er vert að minnast á að nýr afhendingarstaður frá Landsneti er fyrirhugaður á Laugarbakka innan fárra ára. Staðan á Norðurlandi er því heilt yfir mjög góð þegar kemur að afhendingaröryggi og -getu. Í þessu felast tækifæri fyrir sveitarstjórnir til að laða að fyrirtæki sem skapa atvinnu og auka verðmætasköpun og velmegun í landshlutanum.

Á fundum með sveitarstjórnum fáum tækifæri til að útskýra okkar verkefni og þær forsendur sem við vinnum eftir, en ekki síður að hlusta. Sveitarstjórnarfólk, starfsfólkið okkar og fyrirtæki á svæðunum búa yfir þekkingu og reynslu sem stjórnendur þurfa að heyra svo hægt sé að taka betri ákvarðanir fyrir framtíðina. Samtölin hjálpa okkur að skilja betur hvað er fram undan og hvar tækifærin og áskoranirnar liggja og svo er einfaldlega árangursríkt að hittast augliti til auglitis.
Eftir þrjá þétta daga, marga kílómetra og enn fleiri samtöl sneri stjórn og framkvæmdastjórn okkar heim með mikið af upplýsingum, sjónarmiðum og hugmyndum í farteskinu. Við þökkum starfsfólkinu okkar á Norðurlandi kærlega fyrir móttökurnar og öllum fulltrúum sveitarfélaga og fyrirtækja sem gáfu sér tíma til að hitta okkur. Þessi samtöl eru okkur mikilvæg og verða áfram stór hluti af því hvernig við viljum vinna með samfélögunum á dreifisvæði okkar.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14