Við elskum hitaveitur! Þær hjálpa okkur að halda húsum heitum sem annars þyrfti að kynda með rafmagni, fyrir utan öll önnur lífsgæði sem heita vatnið færir okkur. Í dag tökum við formlega í notkun nýja vinnsluholu, RR-38, við Reyki í Húnabyggð. Holan markar tímamót í uppbyggingu hitaveitu okkar í Húnabyggð og á Skagaströnd.
Vinnsluholan RR-38 var formlega tekin í notkun í dag með vígsluathöfn. Þar með lýkur umfangsmiklu verkefni sem hófst árið 2021 með það markmið að auka afkastagetu hitaveitunnar og tryggja nægjanlegt framboð á heitu vatni fyrir ört vaxandi eftirspurn á svæðinu. Hitaveitan að Reykjum þjónar nú öllu þéttbýli á Blönduósi og Skagaströnd auk dreifbýlis í Húnabyggð. Með tilkomu nýju vinnsluholunnar eykst rekstraröryggi veitunnar umtalsvert og nú er tryggt að veitan geti sinni bæði núverandi og framtíðareftirspurn á svæðinu.
Óli Þór Jónsson, rekstrarstjóri hitaveita hjá Rarik hélt stutta tölu við vígsluathöfnina.
Frá vinstri: Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Rarik, Árni Magnússon, forstjóri ÍSOR, Pétur Arason, sveitarstjóri Húnabyggðar og Óli Þór Jónsson, rekstrarstjóri hitaveita hjá Rarik, skáluðu í hitaveituvatni fyrir nýrri vinnsluholu.
Fyrsta tilraunaholan, RR-32, var boruð árið 2021 og markaði upphaf þess verkefnis að finna aukið magn af heitu vatni til að styrkja hitaveituna að Reykjum. Þessu fylgdi umfangsmikil rannsóknarvinna til að greina jarðhitakerfið á svæðinu betur. Árið 2023 var ráðist í framhaldsboranir og boraðar fimm 500 metra djúpar tilraunaholur, RR-33 til RR-37. Niðurstöður þeirra borana lögðu grunninn að ákvörðun um endanlega staðsetningu vinnsluholu.
Frá borun við Reyki í Húnabyggð 2024.
Í kjölfarið hófst borun á RR-38 sem lauk veturinn 2024. Holan er alls 1.602 metra djúp og er fóðruð niður á 430 metra dýpi. Við borun komu í ljós gjöfular sprungur á um 610 metra dýpi og minni sprungur á 1.020 metra dýpi. Hitastig holunnar mælist um 76°C, sem gerir hana vel hæfa til hitaveitunotkunar.
Á árinu 2024 var ráðist í hönnun og smíði djúpdælubúnaðar sem framleiddur var af fyrirtækinu Schlumberger í Skotlandi og var hann tilbúinn í maí sama ár. Samhliða fór fram hönnun og lagning nýrra láréttra stofnlagna sem lauk síðla árs 2024. Í desember var dælunni loks komið fyrir í vinnsluholunni við afar erfiðar aðstæður. Lokafrágangur á rafmagni og lögnum stóð svo yfir fram á vor 2025. Holan var prufugangsett í mars 2025 og síðan hafa farið fram fínstillingar og prófanir.
Jóhanna Stella Jóhannsdóttir, bóndi og landeigandi á Reykjum kveikti á dælunni.
Hilmar Arngrímu Frímannsson, starfsmaður framkvæmdaflokks Rarik á Blönduósi opnar fyrir kranan svo hægt sé að bjóða upp á smakk af hitaveituvatninu.
Djúpdæla var sett niður í nóvember 2024.
Holan RR-38 er flóðopin sem þýðir að þótt dælt sé úr henni lækkar yfirborð hennar lítið sem ekkert. Allar niðurstöður benda til að holan sé nokkuð öflug og höfum við náð að dæla úr henni 36 sekúntulítrum, sem er nærri hámarksafköstum dælunnar – ekki er þó vitað hvaða áhrif slík hámarksnýting myndi hafa á aðrar vinnsluholur svæðisins til lengri tíma. Allar líkur eru þó á að holan gæti gefið mun meira af sér með öflugri dælu. Vatnið úr holunni er um 3°C heitara en vatnið úr eldri holum og eykur það heildar varmaafl veitunnar um 10%.
Ljóst er að með tilkomu RR-38 verður hægt að afhenda mun meira af heitu vatni á svæðinu en mögulegt hefur verið hingað til. Skortur hefur verið á heitu vatni á svæðinu síðastliðin ár og er virkjun nýju borholunnar liður í því að snúa vörn í sókn í þeim efnum. Verkefnið er gott dæmi um markvissa uppbyggingu innviða sem miðar að því að auka sjálfbærni og þjónustugæði hitaveitunnar. Með því styrkir Rarik stöðu sína sem öflugur veituaðili á Norðurlandi og stuðlar að auknum lífsgæðum fyrir íbúa svæðisins.
Gestir sundlaugarinnar á Blönduósi munu hafa nóg af heitu vatni til að busla í næstu árin og áratugina þökk sé borholu RR-38.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15