ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Leiðbeiningar fyrir álestur hitaveitumæla

Til að tryggja rétta og áreiðanlega álagningu hitaveitukostnaðar er mikilvægt að viðskiptavinir Rarik skili reglulega inn sjálfsálestri af hitaveitumælum sínum. Sjálfsálestur gerir okkur kleift að reikna út raunverulega notkun og tryggir að reikningarnir endurspegli raunverulega notkun hverju sinni.

Í leiðbeiningunum hér að neðan finnur þú skýrar og einfaldar upplýsingar um hvernig á að skila sjálfsálestri, hvaða leiðir eru í boði og hvenær skila þarf upplýsingunum. Markmiðið er að ferlið sé einfalt, fljótlegt og þægilegt fyrir okkur öll.

Við notumst við þrjár tegundir hitaveitumæla og þeir eru Kamstrup Multical 601, 602 eða 603:

Kamstrup Multical 603

Höfn í Hornafirði - Algengir mælar eru Kamstrup Multical 603

Kamstrup Multical 601

Blönduós og Siglufjörður

Algengir mælar eru Kamstrup Multical 601

Kamstrup Multical 602

Búðardalur

Algengir mælar eru Kamstrup Multical 602


Höfn í Hornafirði – Kamstrup multical 603

Álestrarviðmót a mínum síðum
Álestrarviðmót a mínum síðum

1. Skráðu þig inn á mínar síður og veldu „Skil á sjálfsálestri

Mælisnúmer á Kamstrup 603
Mælisnúmer á Kamstrup 603

2. Mælisnúmer: Á mínum síðum eiga þínir mælar að birtast og þú velur þann mæli sem við á. Mælisnúmerið sem einkennir þinn mæli er staðsett framan á mælinum, undir strikamerkinu. 

Kílovattstundir á Kamstrup 603
Kílovattstundir á Kamstrup 603

3. Kílóvattstundir: Til að skila inn álestri af hitaveitumæli þarf að lesa af honum kílóvattstundirnar (kWh) en þær sjást ekki alltaf á upphafsskjá. Smelltu á „hægri“ örina (takkann) þar til þú sérð „E4” uppi í hægra horninu. Þá sérðu réttu töluna! Hægt er að fara til baka með því að ýta á vinstri örina en ef mælirinn er látinn ósnertur í fjórar mínútur fer hann aftur í upphafsstöðu.

Sláðu inn töluna sem mælirinn sýnir á E4
Sláðu inn töluna sem mælirinn sýnir á E4

4. Sláðu inn í álestrarviðmótið á mínum síðum, töluna á skjánum (þegar E4 sést efst í hægra horninu). Enn betra er að taka mynd og skila með sem viðhengi. Myndin hér sýnir álestrarviðmótið:


Blönduós og Siglufjörður – Kamstrup multical 601

Álestrarviðmót a mínum síðum
Álestrarviðmót a mínum síðum

1. Skráðu þig inn á mínar síður og veldu „Skil á sjálfsálestri

Mælisnúmer á Kamstrup 601
Mælisnúmer á Kamstrup 601

2. Mælisnúmer: Á mínum síðum eiga þínir mælar að birtast og þú velur þann mæli sem við á. Mælisnúmerið sem einkennir þinn mæli er staðsett framan á mælinum, efst til hægri.

Kílovattstundir á Kamstrup 601
Kílovattstundir á Kamstrup 601

3. Kílóvattstundir: Til að skila inn álestri af hitaveitumæli þarf að lesa af honum kílóvattstundirnar (kWh) en þær sjást ekki alltaf á upphafsskjá. Smelltu á „hægri“ örina (takkann) þar til þú sérð „E4” uppi í hægra horninu. Þá sérðu réttu töluna!

Sláðu inn töluna sem mælirinn sýnir á E4
Sláðu inn töluna sem mælirinn sýnir á E4

4. Sláðu inn í álestrarviðmótið á mínum síðum, töluna á skjánum (þegar E4 sést efst í hægra horninu). Enn betra er að taka mynd og skila með sem viðhengi. Myndin hér sýnir álestrarviðmótið: 


Búðardalur – Kamstrup multical 602

Álestrarviðmót a mínum síðum
Álestrarviðmót a mínum síðum

1. Skráðu þig inn á mínar síður og veldu „Skil á sjálfsálestri

Mælisnúmer á Kamstrup 602
Mælisnúmer á Kamstrup 602

2. Mælisnúmer: Á mínum síðum eiga þínir mælar að birtast og þú velur þann mæli sem við á. Mælisnúmerið sem einkennir þinn mæli er staðsett framan á mælinum, efst til hægri.

Kílóvattstundir á Kamstrup 602
Kílóvattstundir á Kamstrup 602

3. Kílóvattstundir: Til að skila inn álestri af hitaveitumæli þarf að lesa af honum kílóvattstundirnar (kWh) en þær sjást ekki alltaf á upphafsskjá. Smelltu á „hægri“ örina (takkann) þar til þú sérð „E4” uppi í hægra horninu. Þá sérðu réttu töluna!

Sláðu inn töluna sem mælirinn sýnir á E4
Sláðu inn töluna sem mælirinn sýnir á E4

4. Sláðu inn í álestrarviðmótið á mínum síðum, töluna á skjánum (þegar E4 sést efst í hægra horninu). Enn betra er að taka mynd og skila með sem viðhengi. Myndin hér sýnir álestrarviðmótið:

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

Rarik ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

Þjónustuver

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14

Bilanavakt allan sólarhringinn

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik