ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Við hefjum samstarf við Mýrdalshrepp um leit að heitu vatni

Í liðinni viku gerðu Mýrdalshreppur og Rarik ohf. með sér samning um heitavatnsleit í nágrenni Víkur í Mýrdal. Samningurinn er liður í samstarfi sveitarfélagsins og Rarik um að kanna möguleika á stofnun hitaveitu til að anna kyndiþörf þéttbýlisins í Vík til lengri tíma.

Óli Þór Jónsson, rekstrarstjóri hitaveitna hjá Rarik, og Björn Þór Ólafsson, oddviti sveitarstjórnar Mýrdalshrepps, skrifuður undir samninginn
Óli Þór Jónsson, rekstrarstjóri hitaveitna hjá Rarik, og Björn Þór Ólafsson, oddviti sveitarstjórnar Mýrdalshrepps, skrifuður undir samninginn

Rarik á og rekur nú fjórar hitaveitur á dreifisvæði sínu; í Búðardal, á Blönduósi og Skagaströnd, Siglufirði og Höfn í Hornafirði, og býr að áratugalangri reynslu af uppbyggingu og rekstri slíkra veitna. 

Í dag eru öll hús í Vík rafkynt og afhendingargeta raforku til svæðisins er takmörkuð. Ný hitaveita myndi draga úr þörf fyrir raforku til húshitunar á svæðinu, auka sveigjanleika og öryggi í raforkudreifingu til Víkur, lækka orkukostnað heimila og fyrirtækja og styrkja aðdráttarafl Víkur fyrir íbúa og atvinnulíf.

Jarðhitaleit undir Hrafnatindum

Í fyrstu verður leitað að heitu vatni ofan þéttbýlisins í Vík, m.a. undir Hrafnatindum. Leitin felur í sér jarðfræðirannsóknir og tilraunaboranir sem áætlað er að hefjist á sumarmánuðum 2026. Vonir standa til að ef leit skilar árangri verði unnt að byggja upp hitaveitu fyrir Vík og nærliggjandi svæði á næstu árum. Slík hitaveita myndi renna öflugum stoðum undir orkuöryggi Mýrdælinga, styðja við orkuskipti, auka lífsgæði íbúa og efla samkeppnishæfni atvinnulífs í Mýrdalshrepp. 

 

„Með þessu samstarfi erum við að taka mikilvægt skref í átt að öruggari, grænni og hagkvæmari orku fyrir íbúa og fyrirtæki í Vík,“ segir Einar Freyr Elínarson hjá Mýrdalshreppi.

 

„Jarðhitaleit í Vík fellur vel að stefnu okkar um orkuöryggi, að veita gott aðgengi að endurnýjanlegri orku og styrkja framþróun samfélaga á landsbyggðinni,“ segir Óli Þór Jónsson, rekstrarstjóri hitaveitna hjá Rarik.

Hrafnatindar Mynd

 

Styrkur úr Loftslags- og orkusjóði

Nýverið fengu Mýrdalshreppur og Rarik úthlutað 176 m.kr. styrk úr Loftslags- og orkusjóði til hitaveituleitar á svæðinu. Styrkurinn er kærkomin innspýting í verkefnið og mun nýtast til grunnrannsókna, jarðeðlisfræðilegra mælinga og tilraunaborana.

Loftslags- og orkusjóður styður meðal annars verkefni sem draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og auka nýtingu innlendra endurnýjanlegra orkugjafa. Verkefnið í Mýrdalshreppi fellur að þeim markmiðum með því að stuðla að orkuskiptum í kyndingu og bættu orkuöryggi á Suðurlandi.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

Rarik ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

Þjónustuver

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14

Bilanavakt allan sólarhringinn

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik