ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Fjölbreyttari ráðgjöf - Tilboð óskast

Við höfum opnað útboð sem opið er öllum ráðgjafaþjónustum.

Óskað er eftir aðilum til þátttöku í samningi um ráðgjafarþjónustu sem fram fer í gegnum gagnvirkt innkaupakerfi, eins og það er skilgreint í 55. gr. reglugerðar nr. 340/2017 um innkaup aðila sem annast vatnveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu. 

 

Til að auka fjölbreytni í ráðgjafaflóru okkar óskum við jafnt eftir stærri og minni aðilum bæði á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu. Hægt er að bjóða í einstaka flokka ráðgjafar en hver ráðgjafi skal á tilboðsdegi hafa að lágmarki einn starfsmann á launaskrá eða einn undirverktaka í þeim flokki/flokkum sem boðið er í. 

 

Skilafrestur tilboða er 20. janúar 2026, kl. 13 en eftir það geta nýir aðilar óskað eftir þátttöku í innkaupakerfinu á meðan það er í gildi, svo framarlega sem þeir uppfylla skilyrðin sem fram koma í útboðs og samningsskilmálunum. 

 

Þátttaka í útboðinu fer fram á útboðsvef Rarik.

 

Þeir flokkar sem falla undir innkaupakerfið eru eftirfarandi: 

  1. Rafdreifikerfi
    1.1   Framkvæmdaeftirlit rafstrengja
    1.2   Hönnun og greining rafdreifikerfis og raflagna
    1.3   Umsjón og eftirlit
    1.4   Hönnun vinnusvæðamerkinga
    1.5   Merkjalýsing
    1.6   Tækniteiknun
  2. Hitaveita
    2.1   Hitaveituhönnun
    2.2   Umsjón og eftirlit
    2.3   Merkjalýsing
    2.4   Tækniteiknun
  3. Mannvirkjaframkvæmdir
    3.1   Hönnun vinnusvæðamerkinga
    3.2   Burðarþolshönnun
    3.3   Arkitekt
    3.4   Landslagsarkitekt
    3.5   Byggingastjóri
    3.6   Umsjón og eftirlit
    3.7   Brunahönnun
    3.8   Loftræstihönnun
    3.9   Lagnahönnun
    3.10   Tækniteiknun

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

Rarik ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

Þjónustuver

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14

Bilanavakt allan sólarhringinn

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik