ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Lægri rafmagnsreikningar í dreifbýli

Gjaldskrá okkar í dreifbýli lækkar frá og með 1. júní þar sem stjórnvöld hafa ákveðið að uppfæra dreifbýlisframlag. Breytingin nær til allra viðskiptavina á töxtum sem njóta dreifbýlisframlags og mun skila sér í lægri reikningum til viðskiptavina í dreifbýli. 

Gjaldskrár í dreifbýli lækka frá og með 1. júní 2026
Gjaldskrár í dreifbýli lækka frá og með 1. júní 2026

Við höldum úti sérstakri gjaldskrá fyrir dreifbýli og annarri fyrir þéttbýli. Ástæðan er sú að kostnaður við dreifingu raforku er ólíkur eftir svæðum. Í dreifbýli er dreifikerfið víðfeðmara, lengri vegalengdir eru á milli notenda og kostnaður við uppbyggingu, rekstur og viðhald kerfisins er því almennt hærri en í þéttbýli. 
Með sérstakri gjaldskrá er hægt að meta þennan kostnaðarmun, reikna út hverju þarf að jafna og sjá hversu vel dreifbýlisframlag dregur úr muninum. Eftir breytinguna verður jöfnun á kostnaði milli dreifbýlis og þéttbýlis um 90-96%. 

 

Fögnum auknum jöfnuði

Við tökum þessari breytingu fagnandi en hún kemur í kjölfarið á því að stjórnvöld hækkuðu fjárhæð jöfnunargjalds í byrjun þessa árs. Jöfnunargjaldið er sameiginlegur pottur sem síðan er nýttur til að greiða framlag til raforkunotenda í dreifbýli. Hækkun dreifbýlisframlagsins er mikilvægt skref í átt að aukinni jöfnun kjara milli viðskiptavina í dreifbýli og þéttbýli og skiptir miklu máli fyrir heimili, fyrirtæki og samfélög um land allt. 
Lækkunin mun koma fram á reikningum með gjalddaga í byrjun júlí.

Gjaldskrá fyrir dreifingu og flutning raforku 01.06.2026

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

Rarik ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

Þjónustuver

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14

Bilanavakt allan sólarhringinn

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik