Við höfum gengið til liðs við hóp bakhjarla Driftar EA til að styðja við öflugt nýsköpunarumhverfi og atvinnuuppbyggingu á Norðurlandi. Með samstarfinu styðjum við starfsemi Driftar EA og tökum virkan þátt í að styrkja umgjörð skapandi lausna og atvinnuuppbyggingar um land allt.
Drift EA er kraftmikil miðstöð frumkvöðla og nýsköpunar þar sem samfélag, þekking og aðstaða skapa frjósaman jarðveg fyrir hugmyndir til að þroskast og vaxa.
Með þátttöku okkar viljum við sýna skýran vilja til að styðja við framtíðaruppbyggingu í gegnum nýsköpun, sérstaklega á Norðurlandi.
„Það skiptir okkur miklu máli að fá trausta og metnaðarfulla bakhjarla með okkur í uppbyggingunni. Samstarfið við Rarik styrkir innviði frumkvöðlastarfs á svæðinu og gerir okkur kleift að styðja betur við atvinnulífið, fræðasamfélagið og laða að fólk með öflugar hugmyndir,“ segir Sesselja Ingibjörg Barðdal, framkvæmdastýra Drift EA.
Hjá Rarik lítum við á nýsköpun sem mikilvægan þátt í sjálfbærri þróun og sterkum samfélögum um land allt. Samstarfið fellur vel að stefnumarkmiðum okkar um að nýta nýjustu tækni og nýsköpun til að auka skilvirkni og draga úr sóun, setja umhverfi, samfélagsábyrgð og eflingu byggðar í forgang og tryggja áreiðanlega afhendingu orku sem styður við orkuskipti og þróttmikið atvinnulíf.
"Við viljum efla vistkerfi nýsköpunar og frumkvöðlastarfs sem skilar samfélaginu verðmætum til framtíðar, ekki síst á landsbyggðinni. Með því að styðja Drift EA erum við að leggja okkar af mörkum til nýsköpunar sem styrkir byggðir, eflir atvinnulíf og styður orkuskipti með skilvirkari og framsæknari nálgun,“ segir Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Þróunar og framtíðar hjá Rarik.
Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14