Í kjölfar lækkunar á gjaldskrá Rarik í dreifbýli, þann 1. júní síðastliðinn, hækkar nú jöfnunargjald hjá öllum dreifiveitum landsins. Eins og áður er markmið stjórnvalda að stuðla að auknum jöfnuði vegna raforkudreifingar í dreyfbýli og þéttbýli.
Rarik heldur úti sérstakri gjaldskrá fyrir dreifbýli og annarri fyrir þéttbýli. Ástæðan er sú að kostnaður við dreifingu raforku er ólíkur eftir svæðum. Í dreifbýli er dreifikerfið víðfeðmara, lengri vegalengdir eru á milli notenda og kostnaður við uppbyggingu, rekstur og viðhald kerfisins er því almennt hærri en í þéttbýli.
Jöfnunargjaldið er sameiginlegur pottur sem síðan er nýttur til að greiða dreifbýlisframlag til raforkunotenda í dreifbýli. Hækkun dreifbýlisframlags, sem tók gildi 1. júní síðastliðinn, er mikilvægt skref í átt að aukinni jöfnun kjara milli viðskiptavina í dreifbýli og þéttbýli og skiptir miklu máli fyrir heimili, fyrirtæki og samfélög um land allt.
Forgangsorka:
Ótrygg orkudreifing
Notkun undanþegin jöfnunargjaldi
Í byrjun árs 2027 mun Rarik gera sérstaklega upp samanlagða notkun umfram 500 MWst á hverjum notkunarstað. Viðskiptavinir sem það á við munu fá endurgreiðslu sem nemur umframgreiðslu jöfnunargjalds á notkun umfram 500 MWst.
Að auki tilkynnum við um 3% hækkun á Gjaldskrá Rarik fyrir þjónustu, og á þjónustugjaldaliðum í Gjaldskrá fyrir hitaveitu en hækkunin er í samræmi við þróun verðbólgu síðastliðna mánuði. Engar aðrar breytingar eru á gjaldskrám fyrir dreifingu og flutning raforku, tengigjöld eða gjaldskrá fyrir sölu á heitu vatni.



Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14