Fyrir allar umsóknir þarf að fylla út eftirfarandi upplýsingar:
Fjöldi viðbótarmæla sem óskað er eftir. Meginreglan er að það er einn mælir á hverja heimtaug. Viðbótarmælar eru eingöngu settir upp í fjöleignahúsum eða húsum með fleiri matshlutum. Sjá frekari upplýsingar í gjaldskrá fyrir tengigjöld rafmagns.
Nafn, kennitala, símanúmer og netfang orkukaupanda sem á að skrá fyrir mæli/mælum. Orkukaupandi er sá sem fær sendan reikning fyrir orkunotkun.
Nafn, kennitala, netfang og símanúmer rafverktaka sem sér um framkvæmd.
Áætluð tímasetning
Hér er átt við dagsetningu sem framkvæmdaflokkur á okkar vegum getur hafist handa við verkið. Við munum reyna að verða við óskum um tímasetningar en það er ekki alltaf hægt. Sendið umsókn inn með nokkurra mánaða fyrirvara.
Óskað er eftir eftirfarandi upplýsingum:
Við getum ekki hafið undirbúning þessa verks fyrr en þjónustubeiðni berst til okkar frá rafverktaka í gegnum gátt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS).
Viðbótarmæli er ekki heimilt að setja upp fyrir notkun utan lóðar heimtaugarhafa.
Bent er á að heimtaugarhafi þarf að vera í sambandi við rafverktaka til að sjá um vinnu í neysluveitu.
Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14