Landsvirkjun hefur tilkynnt RARIK um að skerðingar verði á afhendingu rafmagns til kyndistöðvarinnar á Seyðisfirði frá og með 18. janúar næstkomandi.
Ætla má að umræddar skerðingar standi í fjóra mánuði og er ástæðan orkuskortur þar sem vatnsstaða í miðlunarlónum Landsvirkjunar er undir meðallagi vegna þurrka. Horfur í vatnsbúskap verða þó endurmetnar eftir atvikum og gætu stytt skerðingatímann.
Kyndistöðin sem notar rafmagn til að hita upp vatn til viðskiptavina hitaveitunnar hefur nýtt ótryggða raforku frá Landsvirkjun til kyndingar og olíuketil til vara. Skerðingarnar valda því að RARIK neyðist til að keyra olíuketilinn til að hita upp vatnið á meðan þær vara.
Kynding með olíu er mun dýrari en kynding með ótryggri raforku og má ætla að viðbótarkostnaðurinn á þessu þriggja mánaða tímabili nemi rúmum 100 M.kr., eða sem samsvarar tekjum veitunnar á heilu ári.
RARIK mun þurfa að skoða áhrif þessara skerðinga á gjaldskrá til viðskiptavina veitunnar.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15