ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Rekstrarhagnaður RARIK 2021 nam 2,1 milljarði króna

Á aðalfundi sem haldinn var í dag kom m.a. fram að rekstur RARIK samstæðunnar gekk ágætlega á árinu 2021. Fráfarandi stjórn RARIK var endurkjörin með þeirri einu breytingu að í stað Kristjáns Möller kemur Thomas Möller í stjórnina.

Rekstur RARIK samstæðunnar gekk ágætlega á árinu 2021. Ekki var eins mikið um tjón á dreifikerfinu vegna veðurs eins og verið hafði tvö árin þar á undan og flæði raforku um dreifikerfi samstæðunnar jókst frá fyrra ári. Hins vegar minnkað orkusala dótturfélagsins Orkusölunnar, bæði vegna vaxandi samkeppni, en einnig vegna minni eigin framleiðslu.

 

Þetta er meðal þess sem fram kom á aðalfundi RARIK sem haldin var í dag. Á fundinum gerði Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri grein fyrir sínum síðasta ársreikningi hjá RARIK eftir gifturíkan feril sem forstjóri fyrirtækisins í rúm 18 ár en alls hefur hann starfað hjá RARIK í tæp 42 ár. Stjórn RARIK hefur greint frá því að Magnús Þór Ásmundsson, rafmagnsverkfræðingur og fyrrum forstjóri Alcoa Fjarðaáls hefur verið ráðinn í starf forstjóra RARIK ohf. og tekur hann við starfinu frá 1. maí næstkomandi.

 

Fjárfest fyrir 4,3 milljarða króna

Heildarfjárfesting RARIK árið 2021 í endurnýjun og aukningu stofn- og dreifikerfisins nam 4,3 milljörðum króna sem er svipað og árið á undan. Þar af var kostnaður við að endurnýja loftlínukerfi í dreifbýli með jarðstrengjum og jarðspennistöðvum um 1,7 milljarður króna og kostnaður við nýjar heimtaugar og til að mæta auknu álagi rúmar 800 milljónir króna. Fjárfestingar í dreifikerfi raforku voru minni en árið áður, en meiri en í langtímaáætlunum vegna flýtiverkefna sem studd eru af stjórnvöldum. Fjárfestingar í stofnkerfi voru minni en gert var ráð fyrir í áætlunum vegna tafa við leyfisveitingar og afgreiðslu á erlendu efni. Fjárfest var í hitaveitum í samræmi við áætlanir

Afkoma RARIK fyrir fjármagnsliði var betri en áætlanir gerðu ráð fyrir, en fjármagnsliðir hærri. Rekstrarhagnaður ársins 2021 var 2,1 milljarðar króna sem er tæp 13% af veltu ársins. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var um 34% sem hlutfall af veltu, eða 5,6 milljarðar króna. Sóttvarnaraðgerðir vegna Covid-19 höfðu talsverð áhrif á skipulag vinnu en fjárhaglegu áhrifin voru ekki mikil.

Heildareignir RARIK í lok árs 2021 námu tæpum 83.5 milljörðum króna og           jukust um rúma 4,6 milljarða á milli ára. Heildarskuldir námu 29,8 milljörðum króna og hækkuðu um tæpar 700 milljónir króna frá fyrra ári. Eigið fé var rúmir 53,6 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall 64,3% samanborið við 63,1% í árslok 2020.

 

362 km af jarðstrengjum lagðir

Alls voru lagðir 362 km af jarðstrengjum á árinu og voru það að stærstum hluta verkefni sem voru á áætlun um endurnýjun dreifikerfisins, en um 100 km voru vegna verkefna sem stjórnvöld ákváðu að veita fjármagni í til að styrkja brothættar byggðir og til að flýta þrífösun til mjólkurbænda og stærri notanda. Áætlað er að endurnýjun dreifikerfisins sem unnið hefur verið markvisst að undanfarin ár með því að færa loftlínur í jarðstrengi ljúki árið 2035. Um síðustu áramót voru liðlega 72% dreifikerfisins komin í jörð en samanlögð lengd þess er um 9.500 km. Með því að færa dreifikerfið úr loftlínum í jarðstrengi hefur truflunum vegna náttúruafla fækkað mikið og á árinu 2021 urðu 53 slíkar truflanir í dreifikerfinu sem er um helmingi færri truflanir en í meðalári.

 

Lagningu dreifikerfis jarðhitaveitu í Hornafirði lokið

Jarðhitaveita í Hornafirði sem tekin í notkun í árslok 2020 leysti af hólmi fjarvarmaveitu á Höfn sem þar hafði verið rekin frá árinu 1980. Á árinu 2021 var lokið við lagningu dreifikerfis í þann hluta bæjarins sem áður var með beina rafhitun og stendur nú öllum íbúum á Höfn til boða að tengjast hitaveitunni

 

Konur með hærri grunnlaun en karlar meiri tekjur

Á árinu hlaut RARIK jafnlaunavottun í fyrsta sinn eftir mikla vinnu við gerð verklagsreglna, ferla og framkvæmd launagreiningar. Launagreiningin leiddi í ljós að grunnlaun kvenna hjá RARIK eru ögn hærri en karla. Aftur á móti voru heildarlaun karla töluvert hærri en kvenna sem skýrist af því að starfsmenn vinnuflokka fyrirtækisins vinna töluverða yfirvinnu auk þess að sinna bakvöktum utan hefðbundins vinnutíma en vinnuflokkarnir eru nær eingöngu skipaðir körlum. Áfram verður unnið við jafnlaunavottun og launagreiningu þannig að það markmið náist að greidd verði sömu laun fyrir jafn verðmæt störf.

 

Aðgerðaáætlun í loftlagsmálum

Í  samræmi við stefnu fyrirtækisins samþykktu stjórn og framkvæmdaráð RARIK ohf. aðgerða-áætlun RARIK í loftlagsmálum á árinu 2021 ásamt losunarmarkmiðum til ársins 2030. Aðgerðaáætlunin og markmið RARIK í loftslagsmálum styðja 13. heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir í loftslagsmálum.

 

310 milljónir króna arðgreiðsla

Á fundinum var samþykkt að greiða 310 milljónir króna í arð til Ríkissjóðs Íslands sem er eigandi RARIK vegna ársins 2020. Á fundinum var stjórn félagsins kjörinn en hana skipa: Arndís Soffía Sigurðardóttir, Álfheiður Eymarsdóttir, Birkir Jón Jónsson, Thomas Möller og Valgerður Gunnarsdóttir.

Tryggvi Þór Haraldsson flytur sitt síðasta erindi á aðalfundi RARIK sem forstjóri fyrirtækisins
Tryggvi Þór Haraldsson fylgir úr hlaði sinni síðustu ársskýrslu sem forstjóri RARIK sl. 18 ár.
Nýráðinn forstjóri Magnús Þór Ásmundsson og stjórnarformaður Birkir Jón Jónsson ásamt fráfarandi forstjóra Tryggva Þór Haraldssyni á aðalfundi RARIK í dag.
Frá vinstri: Nýráðinn forstjóri Magnús Þór Ásmundsson og stjórnarformaður Birkir Jón Jónsson ásamt fráfarandi forstjóra Tryggva Þór Haraldssyni á aðalfundi RARIK í dag.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar