ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Magnús Kristjánsson kveður Orkusöluna

Magnús Kristjánsson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Orkusölunnar eftir nær tvo áratugi í starfi. Hann hefur verið í fararbroddi félagsins nánast frá stofnun þess, eða frá janúar 2008, og haft mikil og góð áhrif á starfsemi þess og menningu. Orkusalan, sem er dótturfyrirtæki Rarik, fagnaði 20 ára afmæli sínu nú á dögunum.

Magnús hverfur frá daglegum rekstri þann 1. apríl n.k. en verður áfram til ráðgjafar eftir þörfum til að styðja við þekkingaryfirfærslu og samfelldni í stjórnun fyrirtækisins. Heiða Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri sölu, þjónustu og markaðsmála, mun taka tímabundið við hlutverki forstjóra frá 1. apríl. Heiða hóf störf hjá Orkusölunni árið 2019 og hefur gengt lykilhlutverki í uppbyggingu sölu-, þjónustu- og markaðsstarfi fyrirtækisins. Áður starfaði hún meðal annars sem markaðsstjóri Jarðbaðanna við Mývatn. Heiða er með BS próf í sálfræði og MS próf í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum.

Magnús Kristjánsson fráfarandi forstjóri Orkusölunnar
Magnús Kristjánsson fráfarandi forstjóri Orkusölunnar hverfur frá daglegum rekstri þann 1. apríl nk.
Heiða Halldórsdóttir tekur tímabundið við hlutverki forstjóra frá 1. apríl
Heiða Halldórsdóttir tekur tímabundið við hlutverki forstjóra Orkusölunnar frá 1. apríl nk.

Undir stjórn Magnúsar hefur Orkusalan vaxið og eflst, bæði sem traust fyrirtæki á orkumarkaði og sem eftirsóknarverður vinnustaður. Hann hefur lagt sérstaka áherslu á jákvæða vinnustaðamenningu, samvinnu og að skapa umhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að blómstra og þróast í starfi.

 

„Ég lít til baka með miklu þakklæti. Það hefur verið sannkallaður heiður að fá að leiða Orkusöluna öll þessi ár og vinna með hæfileikaríku og kraftmiklu starfsfólki. Ég vil þakka samstarfsfólki mínu innilega fyrir samfylgdina, traustið og öll þau verkefni sem við höfum tekist á við saman. Sjálfur hlakka ég mikið til að takast á við ný og spennandi verkefni,“ segir Magnús.

 

Á ferli sínum hefur Magnús notið virðingar fyrir öfluga forystu og áherslu á sterka liðsheild. Það endurspeglast meðal annars í viðurkenningum sem Orkusalan hefur hlotið á undanförnum árum, svo sem viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA fjögur ár í röð, auk tilnefningar Magnúsar til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi árið 2026.

 

Við færum Magnúsi bestu þakkir fyrir farsælt og mikilvægt framlag til félagsins.

 

„Magnús hefur átt stóran þátt í uppbyggingu Orkusölunnar og þeim sterka grunni sem félagið stendur á í dag. Við þökkum honum fyrir framúrskarandi störf og óskum honum velfarnaðar í því sem fram undan er,“ segir Magnús Þór Ásmundsson, stjórnarformaður Orkusölunnar og forstjóri Rarik.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

Rarik ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

Þjónustuver

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14

Bilanavakt allan sólarhringinn

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik