ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Kristín Soffía Jónsdóttir ráðin til að stýra þróun og framtíð hjá RARIK

RARIK hefur ráðið til sín Kristínu Soffíu Jónsdóttur sem framkvæmdastjóra þróunar og framtíðar RARIK en um nýja stöðu er að ræða samkvæmt nýju skipulagi RARIK sem tók gildi 1. október síðastliðinn.

Kristín Soffía Jónsdóttir framkvæmdastjóri þróunar og framtíðar hjá RARIK
Kristín Soffía Jónsdóttir framkvæmdastjóri þróunar og framtíðar hjá RARIK

Kristín Soffía kemur frá Leitar Capital Partners en hún situr jafnframt í stjórn Orkusölunnar ehf., dótturfyrirtækis RARIK. Þar áður var hún framkvæmdastjóri hjá KLAK – Icelandic Startups. Hún hefur ennfremur starfað sem borgarfulltrúi um margra ára skeið. Þá stofnaði Kristín félagið Sea Fuel ehf. sem undirbjó framleiðslu á ammoníaki.

 

Kristín Soffía hefur víðtæka og fjölbreytta reynslu af störfum úr nýsköpun og frumkvöðlastarfi sem hentar vel fyrir komandi verkefni hennar í Þróun og framtíð þar sem áherslan verður lögð á þau miklu tækifæri sem felast í breytingum sem eru að raungerast á sviði orkumála og í verkefnum dreifiveitna.

 

„Við erum kampakát að fá Kristínu til liðs við okkur í nýju skipulagi RARIK. Reynsla hennar er mjög hentug þeim verkefnum sem hún mun takast á hendur og ekki síður er drifkraftur hennar mikilvægur þegar við stöndum frammi fyrir nýjum áskorunum í tengslum við þriðju orkuskiptin á landsbyggðinni. Bakgrunnur Kristínar er umhverfisverkfræði sem er okkur mikilvæg fagþekking og tengir vel við verkefni um loftslagsvá og orkuskipti. Við hlökkum til að fá hana til starfa í framkvæmdastjórn RARIK,“ segir Magnús Þór Ásmundsson forstjóri RARIK.

 

Í forgrunni verkefna Kristínar Soffíu verða þriðju orkuskiptin en það er hlutverk RARIK að gera þau möguleg á landsbyggðinni. Í starfinu felst m.a. einnig rýni og greining á framtíðarhögun dreifiveitu með nýjum orkukostum og smávirkjunum þar sem viðskiptavinir verða í ríkari mæli bæði viðtakendur og framleiðendur raforku.

 

„Hjartað mitt slær alltaf í umhverfismálum og ég er mjög spennt að vera komin í orkumálin og tel að það felist gríðarleg tækifæri í orkuskiptum á landsbyggðinni. Nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi hafa átt hug minn allan seinustu ár og núna fæ ég tækifæri til að sameina ástríðu mína fyrir umhverfismálum og nýsköpun og er þetta því sannkallað draumastarf. Ég mun leggja hart að mér til að leiða þessi verkefni til lykta með góðum stuðningi reyndra og faglegra starfsfélaga hjá RARIK,“ segir Kristín Soffía.

 

Tryggvi Ásgrímsson sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra þróunar og framtíðar hefur ákveðið að stíga til hliðar sem framkvæmdastjóri. Tryggvi á að baki tæplega 36 ára starfsferil hjá RARIK, nú síðast sem framkvæmdastjóri Tæknisviðs og svo framkvæmdastjóri Þróunar og framtíðar. Tryggvi mun áfram starfa á sviðinu sem sérfræðingur og vera Kristínu innan handar í nýju hlutverki.

 

RARIK hefur á undanförnum vikum ráðið fjölbreyttan hóp nýs starfsfólks í tíu hlutverk, til samræmis við nýtt skipurit félagsins. Sjö þeirra munu starfa á starfstöðvum RARIK á landsbyggðinni og þrjú á starfsstöð fyrirtækisins í Reykjavík. Í ráðningunum var lögð áhersla á að veita tækifæri á landsbyggðinni en yfir 70% alls starfsfólks RARIK starfar á starfsstöðvum fyrirtækisins utan höfuðborgarsvæðisins.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar