Almennir gjaldaliðir í gjaldskrám okkar fyrir dreifingu, innmötun og tengigjöld rafmagns, hækkuðu um 2,5% núna um mánaðarmótin. Ekki er gert ráð fyrir frekari almennum hækkunum á gjaldskrám fyrir raforku næstu 12 mánuði. Jafnframt verða gjöld lækkuð fyrir viðskiptavini sem framleiða rafmagn í litlu magni og vilja selja umframorku inn á dreifikerfið. Breytingarnar tóku gildi þann 1. nóvember 2026.
Stjórn Rarik hefur samþykkt að hækka gjaldskrár okkar um 2,5% en að bíða með frekari gjaldskrárhækkanir næstu 12 mánuði. Hækkunin er í samræmi við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Með ákvörðuninni vonumst við til að leggja okkar af mörkum til að draga úr verðbólguþrýstingi og stuðla að stöðugleika. Samhliða breytum við gjaldtöku á fastagjaldi fyrir framleiðslueiningar undir 100 kW sem lækkar kostnað þeirra og auðveldar einstaklingum og minni fyrirtækjum að selja umframorku.
Gjaldskrártekjur okkar eru fyrst og fremst nýttar til að styrkja kerfið, tryggja afhendingaröryggi og mæta aukinni raforkuþörf vegna orkuskipta og atvinnuuppbyggingar. Þörfin fyrir slíkar fjárfestingar setur því aukinn þrýsting á að hækka gjaldskrár. Við munum mæta takmörkuðum gjaldskrárhækkunum nú með frekari forgangsröðun framkvæmda. Þá verður áfram lögð rík áhersla á kostnaðaraðhald en það skilaði 9% lækkun á stýranlegum rekstrarkostnaði á fyrstu sex mánuðum þessa árs samanborið við árið í fyrra.
Breytingarnar ná eingöngu til gjaldaliða vegna dreifingar, innmötunar og tengigjalda hjá Rarik. Þær taka ekki til flutningsgjalda Landsnets, söluverðs raforku, þjónustugjalda okkar eða gjalda vegna hitaveitna Rarik.

Sífellt fleiri viðskiptavinir okkar hafa áhuga á að framleiða eigið rafmagn, til dæmis með sólarsellum, og selja þá orku sem þau nýta ekki sjálf. Til að auðvelda slíka framleiðslu greiða viðskiptavinir okkar með framleiðslueiningar undir 100 kW nú eingöngu fastagjald miðað við stærð heimtaugar samkvæmt Gjaldskrá fyrir dreifingu og flutning raforku í stað sérstaks innmötunargjalds. Aflgjald vegna innmötunar verður áfram innheimt.
Breytingin er til einföldunar og getur gert sölu umframrafmagns hagkvæmari fyrir framleiðslueiningar undir 100 kW. Sem dæmi gæti ávinningurinn af 16 kW framleiðslueiningu numið nokkrum tugum þúsunda króna á ári, eftir því hversu mikil orka er seld og á hvaða verði. Vakin er athygli á að kröfur HMS vegna uppsetningar smærri virkjana eru enn þær sömu. Mesti fjárhagslegi ávinningurinn af eigin raforkuframleiðslu felst þó áfram í því að nýta orkuna sjálf og minnka þannig raforkukaup. Endurgreiðsla ávinnings fyrir virkjanir undir 100 kW sem tengjast Rarik eftir 01.11.2026 verður hér eftir í formi lægra fastagjalds í stað sérútreiknings.
Þótt heimili og fyrirtæki framleiði hluta af raforkunni sjálf þurfa þau áfram að geta treyst á dreifikerfið þegar eigin framleiðsla dugir ekki. Þetta á sérstaklega við yfir vetrarmánuðina þegar sólskin er minna og raforkunotkun getur verið meiri. Þess vegna þarf gjaldskrá okkar að endurspegla bæði notkun dreifikerfisins og kostnaðinn við að tryggja að rafmagn sé ávallt tiltækt.
Breytingar á innmötunargjaldskrá eru fyrsta skrefið í framþróun á gjaldskrám Rarik sem tekur betur mið af eigin raforkuframleiðslu, breyttri notkun og orkuskiptum.
Gjaldskrá fyrir dreifingu og flutning raforku:
Gjaldskrá fyrir tengigjöld rafmagns:
Gjaldskrá fyrir innmötun:
Nánari upplýsingar um breytingar á einstökum gjaldskrárliðum má finna í gjaldskrám Rarik.

Almennir viðskiptavinir: Almennir gjaldaliðir í gjaldskrám okkar fyrir dreifingu, tengingu og innmötun hækka um 2,5%. Áhrif hækkunar Rarik á meðalheimili í þéttbýli með 4.500 kWst notkun á ári verða um 146 kr. á mánuði með virðisaukaskatti. Fyrir sambærilegt heimili í dreifbýli er hækkunin 307 kr. á mánuði m.vsk. þar sem dreifbýlisframlag stendur í stað.
Stærri viðskiptavinir í dreifbýli: Taxtinn VA430 sem hugsaður er fyrir stór fyrirtæki í dreifbýli breytist í samræmi við VA410 sem er þéttbýlistaxti í sama flokki. Hér er um að ræða stærstu viðskiptivini Rarik í dreifbýli og er þessi breyting hugsuð til að auka samkeppnishæfni þeirra eins og best verður á kosið.
Smærri raforkuframleiðendur: Viðskiptavinir með framleiðslueiningar undir 100 kW greiða ekki lengur innmötunargjald heldur sama fastagjald og aðrir almennir viðskiptavinir miðað við stærð heimtaugar. Ávinningur okkar vegna lægri kostnaðar til Landsnets verður hér eftir í formi lægra fastagjalds í stað sérútreiknings fyrir hverja vinnslueiningu. Þetta einfaldar gjaldskrána og eykur gegnsæi auk þess að liðka til fyrir sölu á umframraforku hjá virkum viðskiptavinum.
Afnám þrígjaldstaxta: Þrígjaldstaxtar verða lagðir niður og viðskiptavinir sem hafa verið á þeim verða fluttir yfir á nýja taxta. Þess hefur verið gætt að flutningurinn valdi ekki óeðlilegum hækkunum til þeirra. Um er að ræða taxtana VO150, VO250 og VO350 í þéttbýli og VO170, VO270 og VO370 í dreifbýli. Tekið skal fram að verið er að skoða tækifæri tengd því að bjóða tíma- og aflháða taxta, m.a. til almennings, með það í huga að verðlauna viðskiptavini fyrir að nýta dreifikerfið með hagfelldari hætti.



Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14