ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Endurnýjuð rafstöð við heimskautsbaug

Grímsey liggur á heimskautsbaug og er 41 km frá norðurströnd Íslands. Í Grímsey rekum við rafstöð sem keyrð er allan sólarhringinn og framleiðir hátt í eina milljón kílóvattstunda af rafmagni á ári fyrir eyjuna. 

Árið 2019 var farið í miklar endurbætur á búnaði rafstöðvarinnar. Settar voru upp þrjár 217 kW vélar og fjarstýranlegt stýrikerfi sem þýðir að við getum í dag stýrt stöðinni frá landi. Nýtt kælikerfi var einnig sett upp og hitinn frá því hefur verið nýttur til að hita upp sundlaugina í Grímsey en ekkert heitt vatn er á eyjunni. Vonir standa til að í náinni framtíð getum við skipt notkun á hefðbundinni díselolíu út fyrir lífræna vetnisblandaða díselolíu (VLO) sem myndi minnka kolefnisspor rafstöðvarinnar verulega.

Þrjár nýjar vélar settar upp í Grímsey vorið 2026

 

Vélarnar stækka

Í byrjun sumars var komið að því að endurnýja vélarnar þar sem þær voru komnar á tíma í stórar upptektir. Settar voru upp þrjár nýjar og aðeins stærri vélar (267 kW) þar sem rafmagnsnotkun hefur aukist með árunum. Með þessari stækkun dugir að keyra eina vél í einu nær allt árið. Þetta þýðir að olían nýtist betur og ending stöðvanna eykst. Tvær af eldri vélunum voru afhentar vélstjórnarbrautum Verkmenntaskólans á Akureyri og Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra og sú þriðja bíður frekari verkefna.

Nærmynd af Scania varaaflsvél í Grímsey

 

Verkefni af þessari stærðargráðu krefst góðs skipulags og liðsheildar. Við viljum því nota tækifærið hrósa öllum þeim sem komu að verkefninu fyrir fagmennsku, samvinnu og dugnað og þökkum Kletti, Rafeyri og Eflu kærlega fyrir gott samstarf. 

Flokkur frá Rarik og Kletti kom að uppsetningu vélanna í Grímsey.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

Rarik ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

Þjónustuver

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14

Bilanavakt allan sólarhringinn

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik