ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

75 ára afmæli RARIK fagnað í gær víða um land

Viðskiptavinir, starfsmenn, samstarfsaðilar RARIK og aðrir velunnarar víða um land fögnuðu í gær 75 ára afmæli RARIK á opnum húsum fyrirtækisins. Starfsstöðvar RARIK á völdum stöðum voru opnaðar síðdegis gestum og gangandi og starfsmenn kynntu starfsemina og buðu upp á kaffi og aðrar veitingar.

Það voru fjölmargir sem nýttu tækifærið til að kynnast starfseminni betur og spjalla við starfsmenn RARIK um fyrirtækið og þau verkefni sem í gangi eru um leið og gestir smökkuðu á afmælistertunni og öðrum veitingum sem boðið var upp á. Opnu húsin voru í Borgarnesi, Stykkishólmi, Blönduósi, Sauðárkróki, Akureyri, Þórshöfn, Egilsstöðum, Fáskrúðsfirði, Hornafirði og á Hvolsvelli. Stemningin var góð og um leið og við þökkum gestum fyrir komuna og starfsmönnum RARIK fyrir þeirra góða framlag, birtum við nokkrar myndir frá viðburðum dagsins.

Kátir krakkar á opnu húsi á Hvolsvelli á 75 ára afmæli RARIK
Kátir krakkar á opnu húsi á Hvolsvelli.
Forstjóri RARIK og svæðisráð fyrirtækisins á Suðurlandi á opnu húsi á Hvolsvelli
Forstjóri RARIK og svæðisráð fyrirtækisins á Suðurlandi á opnu húsi á Hvolsvelli.
Opið hús í Borgarnesi á 75 ára afmæli RARIK
Frá opnu húsi í Borgarnesi.
Opið hús á Sauðárkróki á 75 ára afmæli RARIK
Frá opnu húsi á Sauðárkróki.
Opið hús á Akureyri á 75 ára afmæli RARIK
Frá opnu húsi á Akureyri.
Opið hús á Egilsstöðum á 75 ára afmæli RARIK
Frá opnu húsi á Egilsstöðum.
Opið hús á Höfn á 75 ára afmæli RARIK
Vel útbúin ökutæki RARIK til sýnis á opnu húsi á Höfn í Hornafirði.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar