ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Gátlisti um endurtenginu heimæðar (hitaveita)


Almennar upplýsingar

Ef heimæð hefur verið aftengd í meira en eitt ár, þarf að sækja um nýja heimæð, sjá Verðskrá fyrir heitt vatn og tengigjöld, grein 3.5. 
 
Endurtenging heimæðar á aðeins við um þá lóð þar sem heimæðin var afgreidd á sínum tíma, en fylgir ekki húsinu við flutning. Ef byggt er nýtt hús í stað gamals sem er rifið og nota á sömu heimæð, þá er ekki sótt um aftengingu og endurtengingu heldur skal sótt um færslu heimæðar. 

  • Heimilisfang verkstaðar, landnúmer og póstnúmer. Hægt er að sækja upplýsingar beint í fasteignaskrá í skráningarforminu. Ef þessar upplýsingar eru ekki til þá er hægt að staðsetja verkstað á korti eða setja inn hnit.
  • Nafn greiðanda, kennitala, GSM símanúmer og netfang. Athugið að greiðandi er sá aðili sem verður skráður fyrir heimlögninni.
  • Nafn tengiliðar í verkefninu, GSM símanúmer og netfang. Athugið að tengiliður er sá aðili sem RARIK er í sambandi við hvað varðar útfærslu og framkvæmd verksins.

Kostnaður


Upplýsingar um framkvæmd

Þegar þú óskar eftir endurtengingu heimæðar þá er þarf að gefa upp eftirfarandi upplýsingum: 

  • Nafn, kennitala, símanúmer og netfang pípulagningarmeistara sem sér um framkvæmd.
  • Áætlaða tímasetningu
    • Hér er átt við dagsetningu sem RARIK getur hafist handa við verkið. RARIK mun reyna að verða við óskum um tímasetningar en það er ekki alltaf hægt. Senda skal umsókn inn með nokkurra mánaða fyrirvara.   

Vinsamlegast athugið

  • RARIK mun senda afrit af umsókn til pípulagningarmeistara sem er gefinn upp í umsókninni.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

Þjónustuver

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

Bilanavakt allan sólarhringinn

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik