Að gefnu tilefni viljum við minna á að frá og með 15. október og til 1. apríl bætist vetrarálag ofan á allan kostnað vegna jarðvegsframkvæmda. Við hvetjum fólk í framkvæmdahugleiðingum til að senda inn umsóknir fyrir þann tíma til að sleppa við aukakostnað. Jarðvegsvinna að vetri til er bæði erfiðari og kostnaðarsamari en á sumrin vegna ýmissa þátta, t.d. frosts í jörðu, snjóalaga, veðurs sem tafið getur framkvæmdir og stutts birtutíma. Því bætist viðbótargjald ofan á fastan kostnað vegna heimlagna yfir vetrartímann. Frá og með 15. október og til 1. apríl bætast 7.500 krónur m.vsk. ofan á hvern lengdarmetra sem Rarik þarf að leggja í jörð utan lóðamarka viðskiptavinar umfram 25 m, grunngjald er alltaf 187.500 kr. m.vsk. Um jöfnunargjald er að ræða fyrir allt landið til að jafna út þann kostnaðarauka sem fellur til vegna ofangreindra ástæðna. Aukakostnaður getur orðið verulegur og er í mörgum tilfellum mun hærri en sem nemur þessu álagi. Við hvetjum viðskiptavini, sem eiga þess kost, til að seinka vinnu við heimtaugar fram yfir 1. apríl til að spara mögulega óþörf útgjöld og sækja tímanlega um heimlagnir fyrir sumartímann.
Með bráðabirgðaheimtaug er átt við heimtaug sem fjarlægð er að verki loknu og gjald fyrir hana dregst ekki frá gjaldi fyrir varanlega heimtaug ef sótt er um slíkt síðar. Bráðabirgðaheimtaugar skulu aflagðar innan 24 mánaða frá tengingu þeirra. Ef sótt er um bráðabirgðaheimtaug í byggingarfasa eignar og síðar stendur til að sækja um fullnaðarheimtaug, þá viljum við benda á að það getur verið hagkvæmara að sækja um „nýja heimtaug“ og sækja svo um flutning heimtaugar þegar sá tími kemur.
Ef verið er að óska eftir bráðabirgðaheimtaug á byggingarlóð þá er afhendingarstaður Rarik við lóðarmörk.
Ef verið er að óska eftir bráðabirgðaheimtaug í tímabundna starfsemi (t.d. matarvagna og slíkt) þá er afhendingarstaður Rarik við næsta götuskáp eða dreifistöð.
Hvaða upplýsingar þurfum við?
Þegar þú sækir um bráðabirgðaheimtaug fyrir rafmagn er óskað eftir eftirfarandi fylgigögnum:
Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14