ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

RARIK tekur lán hjá NIB

RARIK og Norræni fjárfestingarbankinn hafa undirritað lánasamning um allt að 20 milljón evra lán til 15 ára, með uppgreiðsluheimild eftir fimm ár. Lánið er til endurfjármögnunar á verkefnum ársins 2022 og til fjármögnunar að hluta til framkvæmdir við endurnýjun og þrífösun loftlínudreifikerfisins með jarðstrengjum árin 2023 og 2024.

RARIK hefur unnið að endurnýjun kerfisins með jarðstrengjum á undanförnum árum og er markmiðið að draga úr truflunum og rafmagnsleysi vegna veðurs. Ákveðið hefur verið að endurnýja allt dreifikerfið á næstu árum til að auka afhendingaröryggi en 75% af kerfinu er nú þegar komið í jörð. Með þessum aðgerðum er RARIK einnig að draga úr viðhaldsþörf og styrkja kerfið til að takast á við aukna raforkunotkun, m.a. vegna orkuskipta.

Samsett mynd úr starfsemi RARIK
Samsett mynd úr starfsemi RARIK

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

Þjónustuver

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

Bilanavakt allan sólarhringinn

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik