RARIK hefur undirritað samstarfssamning við Skýrr um innleiðingu á rafrænni skeytamiðlun reikninga til aðila sem óska eftir að móttaka reikninga á rafrænan máta inn í bókhaldskerfi.
Einnig var samið um sérhæfða hýsingu á reikningum til miðlunar á vef. Hér eru stílsnið notuð og tækifærið nýtt til að einfalda reikningaútlit og framsetja upplýsingar með gleggri hætti en áður.
Loks var samningur um prentun reikninga endurnýjaður, en Skýrr hefur til margra ára séð um prentun orkureikninga fyrir RARIK.
Samskiptaháttur byggir á XML skeytasendingum samkvæmt skeytalýsingum NES (North European Subset) sem er afmörkuð útgáfa UBL skeytastaðals um rafræn samskipti.
Skeytamiðlun Skýrr gegnir lykilhlutverki í samningi þessum. Skeytamiðlunin er miðlæg þjónusta, sem dreifir reikningum á rafrænan og öruggan máta milli aðila í atvinnulífinu sem tengjast miðluninni. Jafnframt þessu er reikningum miðlað til prentunar eins og við á og loks til RARIK til notkunar á þjónustuvef og viðskiptakerfi.
„Markmið okkar með þessum samningi er fyrst og fremst að hagræða með úthýsingu og bæta upplýsingagjöf til viðskiptavina . Samhliða þessu er skeytamiðlunin liður í þeirri stöðugu viðleitni okkar að auka gæði þjónustunnar," segir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK.
„RARIK er framsækinn og nútímalegur vinnustaður, sem leitast við að vera leiðandi í nýtingu upplýsingatækni til að ná fram auknum gæðum og hagræði í rekstri. Við erum ákaflega ánægð með þennan viðskiptavin og þykir gaman að taka þátt í því að þróa þeirra þjónustuframboð," segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr.
RARIK ohf. er hlutafélag í eigu ríkisins, sem tók árið 2006 við rekstri Rafmagnsveitna ríkisins. Megináhersla fyrirtækisins í dag er á raforkudreifingu. Starfsmenn RARIK eru um 200. Af þeim starfa um 50 á aðalskrifstofu í Reykjavík en aðrir eru dreifðir á um 25 starfsstöðvar fyrirtækisins. Tryggvi Þór Haraldsson er forstjóri RARIK.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15