ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Mesta tjón vegna ísingar í 17 ár

Straumlaust víða – Unnið að viðgerð á fullu. Reikna má með að viðgerð ljúki í Skagafirði næsta sólarhring en eitthvað síðar í Mývatnsveit. Verið er að auka við færanlegt varafl á Norðausturlandi.

Óveðrinu í gær fylgdi mikil ísing á línum á Norðurlandi. Tugir staura hafa brotnað og línur sligast vegna þunga ísingar og hvassviðris. Reikna má með að viðgerð ljúki í Skagafirði næsta sólarhring en eitthvað lengra í að hægt verði að klára viðgerð í Mývatnsveit.

 

Nú skömmu fyrir hádegi var staðan þessi:

 

Mest virðist tjónið í Mývatnssveit þar sem tugir staura eru brotnir og línur slitnar. Viðgerð þar er hafin, vinnuflokkar og efni komið á staðinn, en ljóst að mikil vinna er þó eftir. Straumlaust er í Laxárdal, menn komnir á staðinn, mikil vinna framundan, „allt í tætlum“, eins og það var orðað. Ennfremur má nefna Bárðardal, a.m.k. 6 staurar brotnir þar og 2 álmur úti, straumlaust innsta hluta Reykjadals og víða straumleysi eða skömmtun í Öxarfirði og varavélar eru keyrðar í Kelduhverfi, Kópaskeri, Raufarhöfn, Þórshöfn og Bakkafirði.

 

Víða í Skagafirði er straumlaust enn, enda línur illa farnar og mikil vinna eftir. Straumlaust er á Reykjaströnd og í dölum norðan Hofsóss. Ekki er að fullu vitað um tjón á þeim slóðum.

Í Húnavatnssýslum er bráðabirgðaviðgerð lokið og rafmagn viðast komið á.

 

Háspennukerfi RARIK í dreifbýli er í heild um 8000 km. RARIK hefur unnið markvist að endurnýjun og styrkingu dreifikerfisins í dreifbýli með lagningu jarðstrengja frá árinu 1991 þegar mikið tjón varð á línum á Norðurlandi. Þá brotnuðu um 550 staurar og í áhlaupinu 1995 á fjórða hundrað staura.

Árangurinn er sá að nú hefur nær helmingur loftlína vikið fyrir jarðstrengjum.

 

Þrátt fyrir að nú blasi við gríðarlegt tjón, er ljóst það hefði orðið mun meira og valdið viðtækara og lengra straumleysi ef strengvæðingin hefði ekki komið til.

Ísing á línu
Ísing 2

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

Þjónustuver

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

Bilanavakt allan sólarhringinn

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik