ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Sækja um heitt vatn (heimæð)

Þú getur sótt um nýja heimæð fyrir heitt vatn rafrænt í gegnum umsóknarvef Rarik.

Áður en þú fyllir út umsókn er mikilvægt að þú kynnir þér hvernig ferlið gengur fyrir sig og farir vandlega yfir gátlistann okkar. Ef umsókn er ekki rétt út fyllt eða inniheldur rangar tæknilegar upplýsingar getur það orsakað tafir á afhendingu og haft í för með sér óþarfan viðbótarkostnað fyrir þig. 

Svona er ferlið þegar þú sækir um nýja heimæð:

Svona er ferlið þegar þú sækir um nýja heimæð:

 

 

Gátlisti heimæðar

 

Mikilvægt er að lesa gátlista fyrir nýtengingu heimæðar áður en umsókn er fyllt út.

 

Gátlisti fyrir fagfólk

 

Mikilvægt að deila með pípulagningameistara

 

Vegna umsóknar um nýja heimæð bendum við á:

 

Ertu örugglega á dreifiveitusvæði okkar?

 

Áður en sótt er um að tengjast hitaveitu Rarik og fá heimæð er gott að athuga hvort þú sért örugglega á hitaveitusvæði okkar eða hvort þú þurfir að sækja um tengingu til annars veitufyrirtækis.

 

Sláðu inn heimilisfangið eða þysjaðu inn á svæðið í kortasjánni til að skoða veitusvæðið okkar.

 

Af hverju að sækja um tímanlega?

Vetrarálag jarðvegsframkvæmda

 

Jarðvegsvinna að vetri til er bæði erfiðari og kostnaðarsamari en á sumrin vegna ýmissa þátta, t.d. frosts í jörðu, snjóalaga, veðurs sem tafið getur framkvæmdir og stutts birtutíma. Því bætist viðbótargjald ofan á fastan kostnað vegna heimlagna yfir vetrartímann. Frá og með 23. október og til 1. apríl bætast 7.500 krónur m.vsk. ofan á hvern lengdarmetra sem Rarik þarf að leggja í jörð utan lóðamarka viðskiptavinar. Um jöfnunargjald er að ræða fyrir allt landið til að jafna út þann kostnaðarauka sem fellur til vegna ofangreindra ástæðna. Aukakostnaður getur orðið verulegur og er í mörgum tilfellum mun hærri en sem nemur þessu álagi. Við hvetjum viðskiptavini, sem eiga þess kost, til að seinka vinnu við heimtaugar fram yfir 1. apríl til að spara mögulega óþörf útgjöld og sækja tímanlega um heimlagnir fyrir sumartímann.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

Rarik ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

Þjónustuver

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14

Bilanavakt allan sólarhringinn

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik