Reglulega kemur upp umræða um að höfuðstöðvar orkufyrirtækja eigi að vera á landsbyggðinni, meðal annars vegna þess að raforkuframleiðslan sjálf fari þar fram. Landsnet, Landsvirkjun og Rarik eru jafnan nefnd sem ákjósanleg fyrirtæki fyrir flutning höfuðstöðva sinna. Hvað Rarik varðar er gjarnan vísað til byggðasjónarmiða og þeirrar staðreyndar að fyrirtækið rekur kerfi á landsbyggðinni.
Rarik er fyrst og fremst þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem sér um dreifikerfi raforku á landsbyggðinni. Þá er fyrirtækið lykilaðili í innleiðingu þriðju orkuskiptanna á Íslandi, í samgöngum. Sú staðreynd að við þjónum mjög stórum hluta landsbyggðarinnar, dreifikerfi okkar er þar og einnig 70% starfsfólks okkar, gerir Rarik sjálfkrafa að landsbyggðarfyrirtæki.
Viðskiptavinir á höfuðborgarsvæðinu
Það að höfuðstöðvar fyrirtækisins séu á höfuðborgarsvæðinu á sér einnig eðlilegar skýringar. Fyrir það fyrsta er oft litið fram hjá þeirri staðreynd að stærsti einstaki hópur viðskiptavina Rarik er þegar á höfuðborgarsvæðinu þótt afhending orkunnar fari fram utan höfuðborgarsvæðisins. Þá eru margir hagaðilar okkar, svo sem stjórnsýsla, eftirlitsaðilar, verkfræðistofur og aðrir samstarfsaðilar einnig með aðsetur á höfuðborgarsvæðinu. Mikil þekking og reynsla myndi tapast ef starfsemi okkar í Reykjavík yrði flutt annað þar sem erfiðara yrði um vik að rækta þessi hagaðilatengsl auk þess sem hætta yrði á atgervisflótta og að við myndum missa mikilvæga þekkingu og hæfni.
Rarik hefur gert grein fyrir þessari afstöðu sinni, meðal annars í umsögn við nýlega þingsályktunartillögu sem lesa má hér og einnig í svari sínu til sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem lesa má hér. Þar er einnig minnst á þá staðreynd að flutningur höfuðstöðva Rarik á landsbyggðina myndi hafa í för með sér sérstakt óhagræði og ójöfnuð fyrir önnur svæði landsbyggðarinnar þar sem við rekum starfsstöðvar. Enn eru samgöngur til Reykjavíkur fjölbreyttari og auðveldari frá öllum landshlutum en á milli landshluta.
Það er mat okkar að starfsemi fyrirtækisins sé í eðlilegu jafnvægi með núverandi fyrirkomulagi. Ekki er óeðlilegt að einhver hluti fyrirtækis, sem er í eigu allra landsmanna, sé á höfuðborgarsvæðinu, allra síst í ljósi þess að þar er stærsti hluti viðskiptavinanna og stórir hagaðilar, eins og áður var nefnt. Þá hefur stjórn Rarik markað sér þá stefnu að horft sé sérstaklega til þess að auglýsa störf óháð staðsetningu. Stjórn hefur einnig samþykkt það verklag að störf sem losna í Reykjavík eru auglýst án staðsetningar, á meðan störf sem losna á landsbyggðinni eru auglýst með staðsetningu á landsbyggðinni. Eins og áður segir eru rúm 140 af 200 starfsfólki okkar á landsbyggðinni og sem dæmi hafa um 40 starfsmenn aðsetur á Suðurlandi, í starfsstöðvum á Selfossi og Hvolsvelli. Þá er fjöldi sérfræðinga og stjórnenda staðsettur í starfsstöðvum okkar á landsbyggðinni.
Sem þjónustufyrirtæki leggjum við áherslu á að hafa starfsfólk og starfsstöðvar nálægt verkefnum og viðskiptavinum. Þegar er unnið að því að skapa tækifæri á áhugaverðum störfum óháð kyni á öllu landinu en það er í takt við þróun nútímasamfélags. Þar spilum við lykilhlutverk en dreifikerfi okkar er forsenda búsetu út um allt land og þeirra orkuskipta sem við stöndum frammi fyrir.
Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14