Slæm veðurspá er fyrir veitusvæði RARIK á sunnudaginn 9.10.2022. Sérstaklega á það við um svæðið frá Siglufirði til Vopnafjarðar og svo á Suðausturlandi. RARIK er í viðbragðsstöðu til að bregðast við hugsanlegum bilunum á dreifikerfinu og upplýsir um stöðu mála á tilkynningasíðu og í kortasjá.
Við þessi veðurskilyrði geta komið upp truflanir í dreifikerfi RARIK og í flutningskerfi Landsnets vegna ísingar, samsláttar og seltu. Að venju stendur starfsfólk RARIK vaktina og er reiðubúið að bregðast við ef þörf krefur. Við viljum minna á bilanasíma RARIK, 528 9000. Við sendum út upplýsingar í SMS skilaboðum til þeirra viðskiptavina sem verða rafmagnslausir. Auk þess geta þau sem eru í netsambandi, fylgst með stöðu mála í rafdreifikerfinu á tilkynningasíðu og í kortasjá.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15