Viðskiptavinir RARIK sem sækja um nýja heimlögn eða breytingu á eldri tengingu, hvort sem er fyrir rafmagn eða heitt vatn, geta framvegis valið milli stafrænnar umsóknar á vef RARIK eða að fylla út hefðbundið umsóknareyðublað á PDF formi sem þar er einnig að finna.
Báðar umsóknarleiðirnar eru að finna hér á vef RARIK. Þeir sem kjósa að senda inn stafræna umsókn þurfa að hafa síma við höndina og auðkenna sig með rafrænum skilríkjum. Hinir sem fylla út hefðbundið eyðublað þurfa að prenta það út og koma því til næstu starfsstöðvar RARIK. Umsóknir þurfa að berast með góðum fyrirvara.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15