Samkomulag um samstarfsvettvang stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir var undirritað í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í gær og er RARIK einn af stofnaðilum þess.
Forsætisráðuneytið, umhverfis- og auðlindaráðuneytið, utanríkisráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið; Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Orkuklasinn, Viðskiptaráð Íslands, Bændasamtök Íslands, Íslandsstofa, auk fjölda fyrirtækja standa að samstarfsvettvangnum.
Markmið vettvangsins er að bæta árangur Íslands í loftslagsmálum og miðla fjölbreyttu framlagi landsins á því sviði. Enn fremur að stjórnvöld og atvinnulíf vinni í sameiningu að metnaðarfullum aðgerðum í loftslagsmálum í samræmi við markmið stjórnvalda, þar með talið kolefnishlutleysi árið 2040.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15