Þann 1. ágúst 2020 hækkaði verðskrá Landsnets um 2,5%. Við hækkun verðskrár RARIK fyrir innmötun raforku til samræmis við þá breytingu var aðeins liðum í A-hluta verðskrár breytt en ekki endurgreiðsluliðum í B-hluta verðskrár. Það hefur nú verið leiðrétt þannig að liðir fyrir aflþátt og orkuþátt í B-hluta verðskrár hækka afturvirkt um 2,5% frá og með 1. ágúst 2020. Þar sem leiðréttingin felst í hækkun endurgreiðsluliða er hún ívilnandi gagnvart viðskiptavinum RARIK.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15