Tekinn hefur verið saman meðalkostnaður fyrir flutning og dreifingu á raforku á árinu 2017, eftir notkunarflokkum, annars vegar í dreifbýli og hins vegar í þéttbýli.
Sumarbústaðir greiddu hæsta verðið í dreifbýli, bæði fyrir og eftir dreifbýlisframlag ríkisins, en garðyrkjulýsing greiddi lægsta verð, bæði fyrir og eftir niðurgreiðslur og dreifbýlisframlag ríkisins. Á árinu 2017 greiddu sumarbústaðaeigendur um tólf og hálfa krónu fyrir hverja kílówattstund fyrir flutning og dreifingu á rafmagni, eftir að tekið hafði verið tillit til tveggja króna dreifbýlisframlags af fjárlögum. Garðyrkjubændur greiddu hins vegar innan við eina krónu á hverja kílówattstund eftir tveggja króna dreifbýlisframlag af fjárlögum og rúmar fimm krónur í niðurgreiðslur frá ríkinu. Að jafnaði borguðu heimilin í dreifbýlinu tæpar sex krónur fyrir flutning og dreifingu rafmagns á hverja kílówattstund eftir að hafa fengið tveggja króna dreifbýlisframlag og tæpar fjögurra króna niðurgreiðslur frá ríkinu. Í landbúnaði voru greiddar rúmar fimm krónur fyrir hverja kílówattstund eftir að tekið hafði verið tillit til tveggja króna dreifbýlisframlags og ríflega þriggja króna niðurgreiðslna á hverja kílówattstund.
Í þéttbýli var hæsta verðið til heimila, en að teknu tilliti til niðurgreiðslna ríkisins greiddu heimilin lægra verð en aðrir notkunarflokkar, að undanskyldri garðyrkjulýsingu. Heimilin í þéttbýli greiddu rúmar fjórar krónur fyrir flutning og dreifingu raforku að teknu tilliti til rúmlega tveggja króna niðurgreiðslna ríkisins, á meðan veitur, þjónusta og iðnaður greiddu milli fimm til sex krónur og garðyrkjulýsing innan við krónu að teknu tilliti til milli þriggja og fjögurra króna niðurgreiðslna ríkisins.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15