ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Breytingar á verðskrám 1. janúar 2019

Eftirfarandi breytingar verða á tveimur verðskrám RARIK 1. janúar 2019:

Verðskrá fyrir flutnings- og dreifikostnað raforku


Verðskrá RARIK fyrir flutnings- og dreifikostnað raforku hækkar um áramótin, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Hækkun á töxtum í þéttbýli er 1,9%, en hækkun í dreifbýli er 2,6%. Þessar hækkanir eru tilkomnar vegna hækkunar á dreifikostnaði RARIK.


Þjónustugjöld samkvæmt III kafla verðskrár hækka um 3,1% frá sama tíma, ef undan eru skilin gjöld vegna vanskilainnheimtu sem eru samkvæmt 6 gr. reglugerðar 37/2009 með síðari breytingum. Umrædd hækkun er aðeins undir verðlagshækkunum sl. 12 mánaða.


Verðskrá fyrir innmötun raforku


Verðskrá RARIK fyrir innmötun raforku breytist frá og með 1. janúar 2019 til samræmis við breytta verðskrá Landsnets frá sama tíma. Um er að ræða ársfjórðungslega breytingu á tapaþætti í verðskrá Landsnets sem áhrif hefur á innmötunarverðskrá RARIK.

Verðskrá fyrir dreifingu og flutning raforku
Verðskrá fyrir innmötun raforku

 

 

Jarðstrengslögn í Hrútafirði sumarið 2018
Mynd úr starfsemi RARIK 2018 - Hrútafjörður.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar