ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Truflanir í kerfi RARIK vegna óveðurs

Óveður geisar á landinu og eru truflanir í kerfi RARIK vegna þessa. Upplýsingar um stöðu mála má finna á tilkynningasíðu og í kortasjá hér á vefnum og á Facebook. Við minnum einnig á bilanasíma RARIK 528 9000.

  • Þessi frétt var fyrst birt 09.10.2022

Óveður 9.10.2022 – Staðan 10.10. kl. 10:00

Nokkrar truflanir urðu í kerfi RARIK í óveðrinu í gær:

 

Á Norðurlandi var Lýtingsstaðarhreppur rafmagnslaus tvisvar og kom í ljós slitinn fasi sem gert var við. Í Bárðardal voru miklar truflanir í kjölfar línuslita og brotinna staura vegna ísingar og vinds. Allir ábúendur voru komnir með rafmagn seint í gærkvöldi. Fimm bæir verða á varaafli þar til búið er að gera við línuna. Farið verður í það á næstu dögum. Einnig voru skemmri truflanir í Reykjadal og Laxárdal. Í Þistilfirði (Sævarland að Krossavík) og Vopnafirði (Fremri-Hlið, Hauksstaðir, Rjúpnafell) eru bilanir en allir ábúendur fengu rafmagn í gær/í nótt. Farið er í frekari bilanaleit og viðgerðir á báðum stöðum i dag. 

 

Á Austurlandi varð ein bilun seint í gærkvöldi.  Nokkrir staurar brotnuðu í Jökuldalnum og er það svæði rafmagnslaust ennþá. Vinnuflokkar eru komnir á staðinn til viðgerða. 

 

Það eru því um 110 viðskiptavinir RARIK enn án rafmagns vegna truflananna í gær. Samtals urðu rúmlega 500 viðskiptavinir fyrir truflunum vegna útleysinga í kerfi RARIK í gær. Því til viðbótar fór Húsavík og nágrenni út í nokkrar mínútur vegna truflunar í kerfi Landsnets. Ekki verða settar frekari upplýsingar um þetta mál hér í fréttina, en það má sjá upplýsingar um stöðu mála á vef fyrirtækisins á tilkynningasíðu (www.rarik.is/tilkynningar) og í kortasjá (www.rarik.is/rof). Ef tilkynna þarf bilanir hafið þá samband í bilanasíma RARIK 528 9000.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar