ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Stjórnarferð RARIK um Norðurland

Stjórn RARIK heimsækir a.m.k. einn landshluta á dreifiveitusvæði RARIK árlega til að ræða við sveitarstjórnir og heimsækja starfsstöðvar fyrirtækisins. Þetta er mikilvægur þáttur í að kynna starfsemi RARIK gagnvart sveitarfélögunum, heyra hvað á þeim brennur, svara spurningum og koma á góðum skoðanaskiptum um stöðu dreifikerfisins. Að þessu sinni var Norðurland sótt heim dagana 24. og 26. ágúst 2022.

Fyrsta dag stjórnarferðar var starfsstöð RARIK á Akureyri heimsótt og rætt við starfsfólk. Á hádegi var fundað á Hótel KEA með sveitarstjórnum Eyjafjarðarsveitar, Grýtubakkahrepps, Svalbarðsstrandarhrepps, Akureyrarbæjar og Hörgársveitar. Þar voru rædd ýmis mál m.a. ástæður verðmunar raforkudreifingar í dreifbýli og þéttbýli, rætt um endurnýjun dreifikerfisins, þrífösun í sveitum og fjallað um lagningu jarðstrengja með ljósleiðurum. Því næst var haldið til Húsavíkur og fundað með sveitarstjórnum í Þingeyjasýslum. Þar var rætt m.a. um stöðu þrífösunar í sveitum og afhendingaröryggi raforku. Að lokum var haldið á jarðhitasvæðið við Þeistareyki og farið í skoðunarferð um jarðvarmavirkjun Landsvirkjunar.


Á stjórnarfundi sem haldinn var á öðrum degi var m.a. afgreiddur árshlutareikningur RARIK, en að því loknu var haldið til Dalvíkur og fundað með sveitarstjórnum Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar. Þar var m.a. rætt um mögulegar tengingar smávirkjana á svæðinu og flutningsgetu til að takast á við frekari uppbyggingu. Að fundi loknum fór stjórn í skoðunarferð í hátæknifiskvinnslu Samherja á Dalvík. Að lokum var haldið til Siglufjarðar þar sem starfsstöð RARIK var heimsótt og rætt við starfsfólk.

 

Á þriðja degi var haldið til Sauðárkróks, farið í skoðunarferð um aðveitustöð RARIK og starfsstöð fyrirtækisins heimsótt og rætt við starfsfólk. Á hádegi var fundað með sveitarstjórnum sameinaðs sveitarfélags Skagafjarðar og Akrahrepps. Þar var rætt m.a. um raforkuverð, skilgreiningar á þéttbýli í verðskrám raforkudreifingar og tengigjalda, verðjöfnun á milli dreifikostnaðar í þéttbýli og dreifbýli og dreifingu starfa um landsbyggðina.. Að loknum fundi var farið í skoðunarferð í Mjólkursamlag KS. Því næst var haldið á Blönduós og fundað með sveitarstjórnum Skagabyggðar, Skagastrandar, Húnabyggðar. Á fundinum var m.a. rætt um stöðu hitaveitunnar á svæðinu og þær áskoranir sem framundan eru.


Að venju var heimsókn stjórnar RARIK vel tekið af sveitarstjórnum, starfsmönnum og öðrum sem við hana ræddu og að mati fyrirtækisins er þessir fundir mikilvægir og stefnt að því að halda þessari hefð áfram.

Fundur stjórnar RARIK á Akureyri með fulltrúum sveitarstjórna í ágúst 2022
Frá hádegisfundi á Hótel KEA á Akureyri með sveitarstjórnum Eyjafjarðarsveitar, Grýtubakkahrepps, Svalbarðsstrandarhrepps, Akureyrarbæjar og Hörgársveitar. Hér ávarpar Magnús Þór Ásmundsson forstjóri RARIK samkomuna og kjölfarið fór fram gott samtal um dreifiveitusvæðið.
Stjórn RARIK og fylgdarlið eftir skoðunarferð um Þeistareykjastöð í ágúst 2022
Stjórn RARIK og fylgdarlið eftir skoðunarferð um Þeistareykjastöð.
Fundur stjórnar RARIK á Dalvík með fulltrúum sveitarstjórna í ágúst 2022
Frá fundi stjórnar RARIK með sveitarstjórnum Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar í menningarhúsinu Berg á Dalvík.
Stjórn RARIK í skoðunarferð um hátæknifiskvinnslu Samherja á Dalvík
Farið var í skoðunarferð um hátæknifiskvinnslu fyrirtækisins á Dalvík.
Fundur stjórnar RARIK með fulltrúum sveitarstjórna á Norðurlandi vestra í ágúst 2022
Þriggja daga stjórnarferð RARIK um dreifiveitusvæði fyrirtækisins á Norðurlandi lauk á með samtali við fulltrúa sveitarstjórna á norðurlandi vestra.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar