Fagaðilum býðst nú WMS þjónusta sem gerir þeim kleift að hala niður landfræðilegum upplýsingum um dreifikerfi RARIK til áframhaldandi vinnslu í eigin hugbúnaði. Sækja þarf um aðgang að þessari þjónustu hér á vefsíðu RARIK.
Landfræðileg gögn um dreifikerfi RARIK eru til frá 1987 í Netbas - gagnagrunni (Powell) en RARIK vinnur einnig með AutoCad, MicroStation og ArcGis. Í þessum gögnum, sem eru uppfærð daglega, er meðal annars að finna upplýsingar um lagnaleiðir strengja og lína og um staðsetningar aðveitu-og aflstöðva.
WMS þjónustan er eingöngu ætluð fagaðilum og er aðgangur að henni tímabundinn til eins árs í senn. Vert er að benda á að eldri kort eru ekki uppfærð (t.d. kortasjá eða cad-skrár) og því er fagfólk hvatt til að kynna sér WMS þjónustu RARIK.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15