ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Endurnýjun dreifikerfis í dreifbýli 2023

Í samræmi við áætlun RARIK um að færa allar loftlínur í jörð fyrir árið 2035 er unnið að jarðstrengjavæðingu dreifikerfis RARIK en í fyrra tókst að leggja alls 420 km af jarðstrengjum. Í ár gerir framkvæmdaáætlun ráð fyrir að alls verði lagðir um 290 km í jörð í dreifbýli. Eins og síðustu ár bætast tilfallandi notendadrifin verk við þessar tölur en á hverju ári er nokkuð um slík verk.

Samkvæmt framkvæmdaáætlun RARIK er gert ráð fyrir rúmlega 3,4 milljarða fjárfestingu í endurnýjun og aukningu dreifikerfis til sveita, og þar af verður um 3,03 milljörðum  varið til þrífösunar dreifikerfisins, m.a. með aðkomu ríkisjóðs, og um 240 milljónum króna verður varið í lagningu stofnkerfis á tímabilinu.

 

Í ár hafa jarðstrengsverkefni fyrirtækisins tafist töluvert af ýmsum ástæðum.  Aðferðafræðin við val á jarðvinnuverktökum í þessi verk var kærð til kærunefndar útboðsmála.  Staðan í því máli er sú að RARIK má setja í gang 14 af 16 útboðsverkum sem eru á dagskrá. Tvö útboðsverk á Suðurlandi eru stopp eins og er og beðið er eftir hvort að kærunefnd útboðsmála leyfi að þau verði sett í framkvæmd eða hvort það þurfi að bjóða þau út aftur síðar.

 

Á forsíðu vefsins www.rarik.is er hægt að finna kortasjá og þar má nálgast samræmdar upplýsingar um helstu framkvæmdir á vegum fyrirtækisins um allt land.

 

Ef smellt er á framkvæmdaflipa kortasjárinnar, birtast framkvæmdir á korti sem hægt er að smella á til að fá nánari lýsingu á einstaka verki auk upplýsinga um verktíma, lengd, legu, spennu jarðstrengs o.s.frv.

Ef smellt er á framkvæmdaflipa kortasjárinnar á forsíðu RARIK vefsins, birtast framkvæmdir ársins.
Ef smellt er á framkvæmdaflipa kortasjárinnar á forsíðu RARIK vefsins, birtast framkvæmdir ársins.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar