Í dag, fimmtudaginn 23. janúar er haldið upp á dag rafmagns á Norðurlöndum. Þetta er mánuði eftir vetrarsólstöður og við merkjum að daginn er aftur tekið að lengja eftir dimmasta skammdegi vetrarins. Í tilefni dagsins bauð Samorka í morgun til opins fundar á Grand hóteli undir yfirskriftinni Framvarðasveit í fárviðri.
Allt umhverfi okkar verður sífellt háðara rafmagni og ekkert bendir til að sú þróun muni breytast heldur þvert á móti. Rafmagnsflutningar aukast og viðkvæmum raftækjum sem þola illa flökt í straumi fjölgar og krafa notenda um gæði og afhendingaröryggi rafmagns vex að sama skapi.
Nýafstaðin óveður í desember síðast liðnum og svo aftur nú í janúar hafa minnt okkur rækilega á mikilvægi rafmagnsins og nauðsyn þess að rafstraumurinn í veggnum, hvort sem er á heimili eða á vinnustað, sé jafn og stöðugur og rofni ekki. Starfsmenn RARIK og annarra orkufyrirtækja, sem staðið hafa í ströngu undanfarið, við að bregðast við afleiðingum ofsaveðra verða áfram í viðbragðsstöðu.
Dreifikerfi RARIK er það umfangsmesta í landinu og nær til um 90% af sveitum landsins og til 43 þéttbýliskjarna. Undanfarin ár hefur verið unnið markvisst að auka og bæta afhendingaröryggi rafmagns, meðal annars með því að færa strengi í jörð og minnka þannig veðurálag á dreifikerfið. Nú er svo komið að um 65 prósent af öllu dreifikerfi RARIK er komið í jarðstrengi og er stefnt að því að ljúka endurnýjun alls loftlínukerfis RARIK með jarðstrengjum árið 2035.
Í tilefni af degi rafmagnsins fimmtudaginn 23. janúar bauð Samorka sem fyrr segir til opins fundar á Grand hóteli í Reykjavík þar sem meðal annars var fjallað um þær aðstæðum sem upp komu í nýafstöðnu fárviðri og voru sýndar myndir frá þeim verkefnum sem framvarðasveit orku- og veitufyrirtækja sinntu við erfið skilyrði.
Fundurinn stóð frá klukkan 9:00 til 10:30 og var dagskrá hans sem hér segir:
Erindi forstjóra RARIK á fundinum:
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15