ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Skilmálar varðandi gjaldfrjáls gögn frá RARIK

Skilmálar þessir varða aðgang að WMS-þjónustu úr kerfum RARIK ohf.

Notanda er einungis heimilt að nota gögn RARIK úr WMS-þjónustu sem eru gerð aðgengileg notendum aðgengileg uppfylltum eftirfarandi skilmálum.

 

Notkun upplýsinga samkvæmt þessu leyfi

Með notkun efnis sem hefur verið gert aðgengilegt samkvæmt þessu leyfi (hér eftir kallað „RARIK gögn“) telst notandi hafa samþykkt eftirfarandi skilmála og skilyrði.

 

RARIK heimilar notanda tímabundið leyfi til notkunar RARIK gagna án sérstakrar þóknunar að uppfylltum skilyrðunum skilmála þessara. Nauðsynlegt er að staðfesta umsókn um áframhaldandi notkun árlega.

 

Kerfi RARIK tekur stöðugum breytingum vegna nýrra framkvæmda. Gögn sem eru sótt og vistuð hjá notanda þarf því reglulega að sækja að nýju þar sem gögnin breytast.

 

Notanda er einungis heimil notkun á RARIK gögnum í eigin þágu (t.d. á innanhús vef-/eða kortasjá og sem undirlag í CAD forritun til glöggvunar.)

 

Notanda er óheimilt að:

  • Dreifa eða miðla RARIK gögnum.
  • Aðlaga eða breyta RARIK gögnum.
  • Taka gjald fyrir aðgang að RARIK gögnum eða nýta upplýsingar í hagnaðarskyni með öðrum hætti.

Sé brotið gegn skilmálum þessum fellur leyfi til notkunar RARIK gagna niður.

 

Engin ábyrgð

Notandi ber sjálfur alla ábyrgð á notkun RARIK gagnanna. RARIK er undanskilið hvers konar ábyrgð, skyldum eða skaðabótaábyrgð í tengslum við RARIK gögnin eða sem kann að leiða af notkun þeirra.

 

RARIK ber ekki ábyrgð á neinum villum eða vanskráningu í upplýsingunum og skal ekki vera ábyrgt fyrir tjóni, hvort sem um sé að ræða líkamstjón, munatjón eða annað tjón, af notkun þeirra.

 

RARIK ábyrgist ekki áframhaldandi aðgengi að upplýsingunum og getur hvenær sem er afturkallað leyfi til notkunar samkvæmt skilmálum þessum.

 

Sérstök athygli er vakin á því að nákvæmni gagna kann að vera ófullnægjandi og er ekki nægileg til að farið sé í framkvæmdir á lagnasvæðum á grundvelli þeirra. Aðilar sem hyggja á framkvæmdir skulu leita til RARIK varðandi nákvæmar upplýsingar um legu lagna. RARIK sónar út strengi framkvæmdaaðilum að kostnaðarlausu.

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar