ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Reikningar og innheimta

Þjónustuver

Þjónustuver RARIK svarar öllum helstu fyrirspurnum varðandi orkureikninga. Hægt er að komast í samband við Þjónustuver í síma 528 9000 eða með því að senda tölvupóst á rarik@rarik.is.

 

Reikningagerð

Orkukaupendur fá að öllu jöfnu reikninga mánaðarlega. Í kjölfar mælaálestur verður uppgjör en þess á milli eru sendir út áætlunarreikningar. Við uppgjör endurreiknast áætluð ársnotkun og áætlaður árskostnaður.  Upplýsingar um mælastöðu, áætlaða ársnotkun og árskostnað koma fram á reikningum. Orkufrekir viðskiptavinir eru ætíð reikningsfærðir samkvæmt raunnotkun.

 

Senda rafrænan reikning

Samstarfsaðilar sem ekki hafa kost á að senda okkur reikninga rafrænt í gegnum eigið bókhaldskerfi geta sent reikninga í gegnum þjónustugátt okkar fyrir rafræna reikninga.

 

Greiðslumátar

Boðið er upp net-, boð- og beingreiðslur auk hefðbundis greiðsluseðils. Heimsendur greiðsluseðill ber aukagjald, seðilgjald. Fyrirtæki eiga kost á rafrænni móttöku orkureikninga í gegnum skeytamiðlanir.

 

Netbankar

Orkukaupendur sem kjósa að greiða raforkunotkun sína með netgreiðslu eða með greiðsluseðli geta greitt í netbönkum. Beingreiðslur skuldfærast sjálfkrafa, en kröfur sem greiðast með kreditkortum eru sendar til viðkomandi kortafyrirtækja. Sundurliðun (útlit) reikninga er ekki hægt að sjá í netbönkum en RARIK er með eigin viðskiptavef, sjá neðar, þar sem nytsamar upplýsingar koma fram.

 

Mínar síður

Orkukaupendur hafa aðgang að viðskiptavef, en þar má skoða viðskiptaupplýsingar svo sem upplýsingar um notkunarstaði, mæla, álestra, reikninga og greiðslustöðu. Unnt er að skoða reikninga og velja prentvænt snið (PDF) bæði samandregið form og sundurliðað. Hægt er að komast inn á viðskiptavefinn með rafrænum skilríkjum eða með kennitölu orkukaupanda auk lykilorðs. Lykilorð má fá sent í heimabanka eða óska aðstoðar þjónustuvers.

 

Reikningar og innheimta

Upplýsingar um innheimtuferli RARIK

Reikningar frá RARIK eru á eindaga annan virkan dag hvers mánaðar. Kröfur til greiðslu birtast í heimabanka viðskiptavina og hægt er að nálgast alla reikninga á mínum síðum RARIK.

 

Hvað gerist ef krafa er ógreidd eftir eindaga?

Dráttarvextir reiknast á höfuðstól kröfunnar eftir eindaga. Innheimtuviðvörun (950 kr.) er send bréfleiðis fjórum dögum eftir eindaga.

 

Milliinnheimta hjá Motus

Þegar liðnir eru 14 dagar frá eindaga, er krafan færð Motus til innheimtu og er þar með ekki lengur í umsjá RARIK. Motus sendir innheimtubréf sem ber með sér aukinn kostnað (sjá gjaldskrá hér fyrir neðan) og hefur umsjón með innheimtu skuldarinnar þaðan í frá.

 

Höfuðstóll kröfu Bréf 1 Bréf 2 Bréf 3
0-2.999 kr. 1.300 kr. 1.300 kr. 1.300 kr.
3.000-10.499 kr. 2.100 kr. 2.100 kr. 2.100 kr.
10.500-84.999 kr. 3.700 kr. 3.700 kr. 3.700 kr.
85.000 kr. og hærra 5.900 kr. 5.900 kr. 5.900 kr.

 

Kostnaður við innheimtubréf er því breytilegur og ákvarðast með hliðsjón af höfuðstól kröfu. Upphæðir eru ákvarðaðar í samræmi við reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar o.fl. nr. 133/2010. (island.is/reglugerdir/nr/0133-2010)

 

Samið um skuld í milliinnheimtu

Til þess að semja um skuld sem komin er í innheimtu hjá Motus, hefur þú samband við þjónustuver Motus í síma 440 7700 eða skráir þig inn á greiðendavef Motus.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar