Vegna veðurs hafa talsverðar truflanir verið á raforkuafhendingu í dreifikerfi RARIK í dag.
Á Suðurlandi brotnuðu staurar í Víkurlínu í morgun þannig að straumlaust varð í Vík, í Mýrdal og Álftaveri um kl. 4 í morgun. Rafmagn kom fljótt á í Álfaveri og rafmagn var skammtað í Vík, en annars var straumlaust á svæðinu þar til búið var að gera við, en rafmagn kom ekki á fyrr en um kl. 14:30.
Á Norðurlandi hafa víða verið rafmagnstruflanir frá hádegi í dag. Rafmagn fór af Svarfaðardal og Skíðadal. Tekist hefur að koma rafmagni á Skíðadal, en leitað er að bilun í Svarfaðardal. Þá eru rafmagnstruflanir á Reykjaströnd í Skagafirði og verið að leita að bilun. Einnig eru truflanir í Aðaldal og Kinn og verið að leita að bilunum þar. Mikil ísing er á línum í Þistilfirði, en ekki vitað um rafmagnsleysi þar.
Á Vesturlandi er rafmagnsbilun á hluta af Mýrum og verið að leita að bilun.
Sjá nánar um framgang mála hér á vef RARIK á eftirfarandi síðum:
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15