Truflanir hafa verið í línukerfi RARIK á Austurlandi frá því seint í gærkvöldi vegna óveðurs. Um 11 truflanir hafa verið á svæðinu frá Stöðvarfirði til Vopnafjarðar. Í flestum tilfellum virðist mega rekja truflanir til seltu.
Veður er búið að vera mjög slæmt og færð erfið svo það hefur tekið tíma að komast á staðina til bilanaleitar og viðgerða. Vel á annað hundrað heimili, sumarbústaðir og vinnustaðir hafa orðið fyrir rafmagnstruflunum vegna þessa. Veðrið er að ganga niður og er vonast til að flestir verði komnir með rafmagn þegar líða fer á daginn.
Upplýsingar um stöðu mála má sjá á tilkynningasíðu og á kortasjá á vef RARIK.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15