Unnið er að því að plægja þriggja fasa jarðstreng, yfir 30 km að lengd, frá Fossi á Síðu að Kálfafelli í Skaftárhreppi. Endurnýjun og efling rafdreifikerfis RARIK á svæðinu kemur m.a. til vegna aukningar á raforkunotkun í ferðaþjónustu. Verkefninu miðar vel og er gert ráð fyrir að framkvæmd ljúki í næstu viku og leggur RARIK metnað sinn í að ganga vel frá að henni lokinni.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15