ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Sveitarfélagið Ölfus eignast götulýsingarkerfið

Þann 22. febrúar undirrituðu RARIK og sveitarfélagið Ölfus samning um afhendingu götulýsingarkerfa frá RARIK til sveitarfélagsins, til eignar og reksturs. Um er að ræða götulýsingarkerfið í öllu sveitarfélaginu sem ekki hefur verið yfirtekið af Vegagerðinni (sbr. frétt á rarik.is 19.01.2018).

 

Uppsetning og rekstur götuljósa var eitt sinn hluti af reglulegri starfsemi dreifiveitna, en skv. raforkulögum nr. 65/2003 fellur götulýsing hvorki undir einkaleyfisstarfsemi dreififyrirtækja né kemur inn í tekjuheimildir þeirra. Götulýsingarkerfin á orkuveitusvæði RARIK hafa þó fram til þessa verið bókfærð hjá dreifiveitunni, en sveitarfélögin hafa greitt stofnkostnað og rekstur þeirra. Æskilegt er að breyta þessu á þann veg að sveitarfélögin yfirtaki eignarhald og rekstur þeirra götulýsingarkerfa sem eru á þeirra ábyrgð og hefur sveitarfélagið Ölfus riðið á vaðið sem fyrsta sveitarfélagið á orkuveitusvæði RARIK sem gerir það. RARIK mun í kjölfarið taka upp viðræður við önnur sveitarfélög um sama mál.

Handsal
Helga Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Rekstrarsviðs hjá RARIK og Gunnsteinn R. Ómarsson sveitarstjóri Ölfuss við handsal samningsins.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar