RARIK og sveitarfélagið Fjarðabyggð hafa undirritað samning um afhendingu götulýsingarkerfa frá RARIK til sveitarfélagsins, til eignar og reksturs, frá og með 1. febrúar 2019. Um er að ræða götulýsingarkerfið í öllu sveitarfélaginu sem ekki hefur verið yfirtekið af Vegagerðinni (sbr. frétt á rarik.is 19.01.2018) og er jafnframt það stærsta sem RARIK kemur til með að afhenda.
Uppsetning og rekstur götuljósa var eitt sinn hluti af reglulegri starfsemi dreifiveitna, en skv. raforkulögum nr. 65/2003 fellur götulýsing hvorki undir einkaleyfisstarfsemi dreififyrirtækja né kemur inn í tekjuheimildir þeirra. Götulýsingarkerfin á orkuveitusvæði RARIK hafa þó fram til þessa verið bókfærð hjá dreifiveitunni, en sveitarfélögin hafa greitt stofnkostnað og rekstur þeirra.
Það þarf að breyta þessu á þann veg að sveitarfélögin yfirtaki eignarhald og rekstur þeirra götulýsingarkerfa sem eru á þeirra ábyrgð. Sveitarfélagið Ölfus var fyrsta sveitarfélagið á orkuveitusvæði RARIK sem reið á vaðið með þetta og í kjölfarið Akureyrarbær og nú Fjarðabyggð.
Sjá frétt um sama mál á vef Fjarðabyggðar.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15