RARIK tók þátt í Framadögum alþjóðlegu stúdentasamtakanna AIESEC sem haldnir voru í Háskólanum í Reykjavík í dag. Mikill erill var í kringum bás RARIK og okkar fólk á staðnum átti gott samtal við áhugasama nemendur.
Framadagar eru haldnir árlega og er markmið þeirra að gefa háskólanemum tækifæri til að kynna sér fyrirtæki og fjölbreytta möguleika á sumarstörfum, framtíðarstörfum eða verkefnavinnu hjá þeim. Um leið eru Framadagar góð leið fyrir fyrirtækin til að hitta og eiga opið samtal við hugsanlega framtíðarstarfsmenn.
Fyrirtækin og stofnanirnar sem tóku þátt í Framadögum í ár voru af ýmsum toga og alls staðar að úr atvinnulífinu. Því gafst þarna gott tækifæri fyrir nemendur til að kynna sér ákveðinn þverskurð af íslensku atvinnulífi og fræðast milliliðalaust um starfsemi fyrirtækjanna.
Meðfylgjandi myndir sýna okkar fólk ásamt nemendum sem sýndu RARIK áhuga á Framadögum í dag:
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15