ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Snjallmælavæðing hjá RARIK

Á næstu árum verður skipt út orkumælum í dreifikerfi RARIK um allt land, bæði raforkumælum og hitaorkumælum, en það er liður í að taka upp nútímalegri aðferð við álestur. Þetta er viðamikið verkefni því skipta þarf út um 35 þúsund mælum og er áætlað að verkefnið taki um það bil 6 ár.

Nýju raforkumælarnir eru snjallmælar með samskiptabúnað sem skilar upplýsingum um notkun til miðlægrar safnstöðvar RARIK og því munu heimsóknir á vegum fyrirtækisins til að lesa á mæla viðskiptavina leggjast af. Um leið og kerfið er tekið í notkun munu reikningar byggja á upplýsingum um raunverulega notkun hvers mánaðar í stað áætlunar og uppgjörsreiknings í kjölfar álesturs.

 

Með þessum breytingum gefst viðskiptavinum möguleiki á að grípa fyrr inn í ef orkunotkun þykir óeðlileg og á sama tíma getur RARIK vaktað afhendingarspennu hjá viðskiptavinum sínum. Eins og áður geta viðskiptavinir fylgst með notkun sinni á mínum síðum á vef fyrirtækisins rarik.is.

Snjallmælir í mælakassa
Snjallmælir í mælakassa.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar